Sest aftur í ritstjórastólinn 27. júlí 2011 15:00 Bergur Ísleifsson hóf útgáfu á Myndböndum mánaðarins fyrir þrettán árum. Hann tekur nú aftur við ritstjórn blaðsins af Erlingi Grétari Einarssyni, en hann hefur ritstýrt blaðinu í tæp fimm ár. „
Það verður gaman að tækla þetta aftur,“ segir Bergur Ísleifsson, en hann tekur við ritstjórn Mynda mánaðarins af Erlingi Grétari Einarssyni, en sá síðarnefndi tók við blaðinu af Bergi árið 2006. Bergur hóf útgáfu á Myndböndum mánaðarins fyrir þrettán árum, en hætti árið 2006 og fór þá að sinna öðrum verkefnum. Erlingur Grétar tók við blaðinu og sagði í viðtali við Fréttablaðið á mánudag að hann hefði sett mikinn metnað í blaðið. „Ég ætla að reyna að viðhalda sama metnaði. Auðvitað fylgir nýjum mönnum ný vinnubrögð, en ég ætla að gera mitt besta til þess að koma minni þekkingu um kvikmyndir á framfæri,“ segir Bergur. Blaðið hét áður Myndbönd mánaðarins og fjallaði þá eingöngu um kvikmyndir sem komnar voru út á myndband. Nú fjallar það hins vegar bæði um myndir sem sýndar eru í kvikmyndahúsum og þær sem komnar eru út á myndbönd. Bergur segist ánægður með það og að hann sé að taka við því blaði sem hann ætlaði upphaflega að vera með. „Blaðið átti alltaf að vera bæði um kvikmyndir og myndbönd, en þetta slitnaði frá á sínum tíma. Það er gaman að taka við þessu aftur núna þegar blaðið fjallar um hvort tveggja,“ segir Bergur. Hans fyrsta blað, ef svo má kalla, kemur út í september og segir hann undirbúninginn hefjast eftir verslunarmannahelgina. „Ég fer bara á fullt að ganga frá næsta blaði eftir helgi,“ segir Bergur. -ka
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira