Tveir í tjaldi á leynieyju 5. ágúst 2011 14:00 Margeir Ingólfsson og Jón Atli Helgason ætla að spila á tónlistarhátíðinni Secret Island Nation en hún er öðruvísi en gengur og gerist. „
Þetta er í fyrsta sinn sem ég er spurður hvort ég hafi reynslu af pólitísku starfi þegar ég er beðinn um að spila," segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson. Hann er á leiðinni til Svíþjóðar í nótt þar sem hann tekur þátt í tónlistarhátíðinni Secret Island Nation, ásamt Jóni Atla Helgasyni. Áfangastaðurinn er leyndarmál en Margeir veit þó að hann er einhvers staðar á vesturströnd Svíþjóðar. Hægt er að kynna sér málið nánar hér á heimasíðu hátíðarinnar. „Þessi tónlistarhátíð er haldin á hverju ári en þetta er í fyrsta sinn sem við erum með," segir Margeir en hátíðin gengur út á að búa til lítið samfélag og hlusta á góða teknótónlist saman. „Fólki er safnað saman frá Norðurlöndunum og Þýskalandi á eyjuna. Fyrsti dagurinn fer í það að stofna nýtt lýðveldi og skrifa stjórnarskrá. Þess vegna var ég spurður um pólitíska fortíð mína," segir Margeir en það á að stuðla að því að gestir lifi í sátt og samlyndi þessa fjóra daga sem hátíðin varir. „Ég hef komið víða við á lífsleiðinni og get eflaust hjálpað til við að skrifa hressandi stjórnarskrá. Svo leysist þetta upp í eitt stórt dansiball með tónlistaratriðum þar sem við spilum." Margeiri var boðið að taka þátt í hátíðinni af bókaranum sínum í Þýskalandi og dró Jón Atla með sér. „Þetta er örlítið öðruvísi en að fara að spila á klúbbi úti í heimi. Ég er að pakka ofan í göngubakpokann og svo verðum við Jón Atli saman í tjaldi. Tveir í tjaldi á leynieyju," segir Margeir og hlær. -áp
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira