Skrifar handrit að teiknimyndaseríu 17. ágúst 2011 10:00
Sigurjón Kjartansson og Hugleikur Dagsson eru að þróa nýja teiknimyndaseríu fyrir sjónvarp. Þeir unnu síðast saman að gerð gamanþáttaraðarinnar Hlemmavideó en það er framleiðslufyrirtæki Sigurjóns, Ídea Filmcompany, sem hefur þáttaröðina á sinni könnu. „Ég get ekki mikið tjáð mig um þetta, ætla bara að vísa á Sigurjón [Kjartansson] sem framleiðir þetta," segir Hugleikur Dagsson, sem fékk nýverið styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands til að skrifa handritið að teiknimyndaþáttaröðinni, sem hefur verið gefið vinnuheitið Hullinn. Hugleikur leyfir sér þó að efast um að Hullinn verði endanlegt nafn á verkefninu.Sigurjón og Hugleikur eru að byrja að skrifa og þróa teiknimyndirnar.Sigurjón upplýsti í samtali við Fréttablaðið að um teiknimyndaseríu væri að ræða þar sem þættirnir yrðu tuttugu mínútur að lengd og væru með söguþráð, ekki í sketsaformi eins og íslenskar teiknimyndir hafa yfirleitt verið til þessa. Hann sagði vinnu hins vegar vera skammt á veg komna, þeir væru að byrja að skrifa og þróa þetta. „Við látum okkur hins vegar dreyma um að fara í framleiðslu á þessu á næsta ári." Umrædd teiknimyndasería yrði mögulega sú fyrsta í íslenskri sjónvarpssögu í þessu formi, Hugleikur hefur hins vegar áður prófað að teikna fyrir sjónvarp og gerði meðal stutta „sketsa" í samstarfi við Tvíhöfða á PoppTV en hægt er að horfa á þær í flokknum Tvíhöfði undir Stöð 2 á Vísir Sjónvarp. Hér fyrir ofan má sjá eitt atriðanna, Dúettinn Plató. „Þá voru teiknimyndirnar kynntar sem íslensk útgáfa af South Park. Þetta verkefni okkar er hins vegar ekkert slíkt, það er hvorki íslenskur Simpsons né South Park," segir Sigurjón. -fgg
Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira