Vekur athygli vestanhafs 17. ágúst 2011 11:00 Ása Helga Hjörleifsdóttir er við meistaranám í kvikmyndagerð við Columbia-háskólann í New York. Hún þykir mikið efni og hefur nælt sér í umboðsmann vestanhafs. Fréttablaðið/Valli „
Það er búið að ganga vel og ég er að finna mig í faginu,“ segir Ása Helga Hjörleifsdóttir, meistaranemi í kvikmyndagerð við Columbia-háskólann í New York. Ása Helga er stödd hér á landi til að taka upp útskriftarverkefnið sitt við skólann, en hún hefur vakið eftirtekt fyrir góða handritasmíð. Reyndar svo mikla að Ása Helga er komin með umboðsmann, en það þykir vel af sér vikið og sérstaklega þar sem hún á ennþá eitt ár eftir í skólanum. „Símtalið frá umboðsmanninum kom mér mikið á óvart,“ segir Ása Helga, en umboðsmaðurinn komst í kynni við verk hennar í gegnum leikkonuna sem leikur aðalhlutverkið í útskriftarverkefninu hennar, Katherine Waterston. Waterston er upprennandi stjarna í bransanum og mikill fengur fyrir útskriftarmyndina hennar Ásu Helgu, sem nefnist Ástarsaga. Katherine er dóttir Sam Waterston, sem leikur Jack McCoy í Law & Order. Næstu verkefni Katherine Waterston eru myndirnar Another Bullshit Night in Suck City, sem skartar Robert De Niro og Julianne Moore í aðalhlutverkum, og The Stare, með James Franco og Winonu Ryder. „Hún er frábær leikkona og stóðst allar væntingar og vel það. Umboðsmaðurinn las handritið mitt hjá henni og hreifst af því. Fyrst þegar ég sá að hann var að reyna að ná í mig var ég viss um að hann væri að fara að kvarta yfir lágu kaupi leikkonunnar. Það var því mjög ánægjulegt þegar hann kom með þessar gleðifregnir,“ segir Ása Helga ánægð, en hlutverk umboðsmannsins er að koma henni inn í bransann vestanhafs og koma verkum hennar í réttar hendur. Ása Helga heldur af landi brott í dag til að leggja lokahönd á útskriftarverkefnið sitt og hefja lokaár sitt í skólanum. -áp
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira