Ungir Íslendingar njóta lífsins í Kaupmannahöfn 24. júní 2011 13:00 Davíð Örn Símonarson, 21 árs Íslendingur, er búsettur í Kaupmannahöfn í sumar. Hann segir að gríðarleg fjölgun hafi orðið á Íslendingunum í Kaupmannahöfn undanfarin sumur.
Kaupmannahöfn hefur alltaf heillað unga Íslendinga og sumarið í ár er engin undantekin því íslensk ungmenni hafa fjölmennt til gamla höfuðstaðarins. „Við vorum ekkert mjög mörg hér fyrsta sumarið, en Íslendingunum hefur fjölgað rosalega í ár,“ segir Davíð Örn Símonarson, 21 árs gamall Íslendingur sem búsettur er í Kaupmannahöfn í sumar. Mikill fjöldi íslenskra ungmenna hefur lagt land undir fót og sest að í Kóngsins Kaupmannahöfn yfir sumarið og Davíð segir ástæðuna einfalda. „Við fáum borgað í dönskum krónum, svo öll launin okkar tvöfaldast í raun og veru út af genginu. Við fáum hörkulaun fyrir litla vinnu,“ segir Davíð, sem vinnur við skúringar í Ráðhúsinu í Kaupmannahöfn. Þar er vinnutíminn frá klukkan sex á morgnana og er Davíð oft kominn heim um ellefu, fimm tímum síðar. „Um leið og maður klárar vinnuna er allur dagurinn fram undan, svo þetta er í raun og veru eins og að vera í launuðu sumarfríi.“ Davíð segir erfitt að áætla hversu margir Íslendingar séu í borginni í sumar, þar sem einhverjir eru í námi og aðrir búa í borginni allt árið um kring. „Við erum svona um og yfir fimmtán sem vinnum í Ráðhúsinu, og það er bara einn vinnustaður af fjölmörgum,“ segir Davíð, en þetta er þriðja sumarið hans í Kaupmannahöfn. Kristján Egill Karlsson er framkvæmdastjóri á Íslendingabarnum Jolene í Kaupmannahöfn. Hann segir erfitt að meta fjölgunina sem á sér stað yfir sumartímann, en heldur þó að flestir sem komi til Kaupmannahafnar séu einmitt þeir sem eru að leita sér að sumarvinnu. Hann segir Íslendingana jafnframt mjög skemmtanaglaða. „Það er stór hópur af Íslendingum sem eru fastakúnnar hér á Jolene. Aðal Íslendingaholan hér í Kaupmannahöfn myndi ég þó segja að væri skemmtistaðurinn Blasen. Annars er allt morandi af Íslendingum hérna,“ segir Kristján Egill.- ka
Mest lesið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Lífið Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Lífið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Fleiri fréttir Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Sjá meira