Upplýsingalög verða skoðuð aftur í haust 11. júlí 2011 03:30 Sagnfræðingur segir misbrest á að fyrirspurnum hans um opinberar upplýsingar hafi verið sinnt. Allsherjarnefnd Alþingis segir að lagst verði yfir frumvarp um ný upplýsingalög í ágúst. Fréttablaðið/valli
Róbert Marshall Fræðimenn, blaðamenn og aðrir sem ekki fara með þau gögn hins opinbera sem undanþegin eru upplýsingarétti, svo sem um fjárhag einstaklinga, í samræmi við fyrirmæli stofnana geta átt yfir höfði sér fjársektir eða allt að þriggja ára fangelsisdóm, samkvæmt frumvarpi um ný upplýsingalög. Frumvarpið liggur nú á borði Allsherjarnefnd Alþingis. Björn Jón Bragason sagnfræðingur gagnrýnir frumvarpið í grein sem hann ritar í nýjasta tölublaði Þjóðmála. Hann bendir á að mikill misbrestur sé á að núgildandi upplýsingalögum sé framfylgt þótt þau tryggi í flestu aðgengi almennings að upplýsingum. Frumvarp um ný lög segir hann hins vegar ekki samið í anda nútímalegra viðhorfa þar sem víðtækur réttur einstaklinga til upplýsinga stjórnvalda er tryggður og vísar til fyrrnefndra viðurlaga ef ekki er farið eftir fyrirmælum hins opinbera. Ákvæðið telur hann fela í sér tálmun á upplýsingarétti. „Frumvarpið felur um sumt í sér afturhvarf til leyndarhyggju fyrri alda, en frekari leynd yfir opinberum upplýsingum mun leiða til enn meiri misnotkunar opinbers valds en nú er,“ skrifar Björn. Róbert Marshall, formaður Allsherjarnefndar Alþingis, segir margt til bóta í nýju frumvarpi um upplýsingalög frá því sem áður var þótt ekki hafi sérstaklega verið fjallað um viðurlögin. Einkum sé þrennt jákvætt í þeim; þau opni fyrir aukið aðgengi almennings að upplýsingum. Þar á meðal eru upplýsingar um fyrirtæki í eigu ríkisins, ákvæði sem opnar fyrir upplýsingar um hæfisskilyrði, launa- og ráðningakjör opinberra starfsmanna auk þess sem stjórnvöldum er skylt að aðstoða viðkomandi í upplýsingaleit ef fyrirspurn er ónákvæm. „Það eru miklar skoðanir á frumvarpinu í Allsherjarnefnd og menn hafa miklar meiningar um að gera breytingar á því. Þótt margt sé til bóta sem opnar á upplýsingar fyrir almenning og fjölmiðla þá vilja menn ganga lengra,“ segir Róbert. Hann bendir á að málið verði tekið fyrir í heild sinni hjá Allsherjarnefnd í ágúst. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira