Selflutningar yfir Múlakvísl undirbúnir og smíði bráðabirgðabrúar hraðað 11. júlí 2011 10:33 Múlakvísl.
Vegna yfirlýsingar Samtaka ferðaþjónustunnar og umfjöllunar um að langan tíma taki að koma upp bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl vill innanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram: Þegar brúna yfir Múlakvísl tók af í hlaupi í ánni aðfaranótt laugardags og Hringvegurinn lokaðist hófust þegar ráðstafanir til að finna leiðir til að opna veginn sem fyrst. Stjórnvöld og Vegagerðin gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vegasamband komist á sem fyrst. Viðgerð á veginum er hafin, verið er að ýta upp vegi að nýju brúarstæði og efni í bráðabirgðabrú er til og er því nú ekið á staðinn. Áætlað er að smíði bráðabirgðabrúar taki tvær til þrjár vikur en hugsanlega miðar verkinu betur enda unnið á sólarhringsvöktum. Jafnframt er nú undirbúið að selflytja fólk, bíla og varning yfir Múlakvísl. Innanríkisráðuneytið hefur falið Vegagerðinni að ganga frá samningum um slíka flutninga. Verið er einnig að ganga frá merkingum og leiðbeiningum varðandi lokun Hringvegarins. Meðan Hringvegurinn er lokaður við Múlakvísl geta jeppar, jepplingar, rútur og vörubílar af ákveðinni gerð ekið um Fjallabaksleið nyrðri milli byggðarlaga á Suðurlandi. Leggja verður áherslu á að sú leið er hins vegar ekki fær öllum bílum. Þetta hefur í för með sér kostnað og tafir á ferðum og flutningum sem koma niður á ferðaþjónustu, flutningastarfsemi og almenningi. Innanríkisráðuneytið deilir áhyggjum Samtaka ferðaþjónustunnar af lokun Hringvegarins og vitaskuld væri hentugast ef leiðin opnast í dag eða á morgun. Það er hins vegar ekki raunhæft og mikilvægt er að allrar sanngirni sé gætt og að allir sameinist um að leita lausna. Stjórnvöld vinna að því,,að öllum tiltækum ráðum verði beitt til að opna leið yfir Múlakvísl sem allra fyrst,“ eins og segir í yfirlýsingu SAF. Ferðaþjónusta er viðkvæmur rekstur og þegar truflanir verða á samgöngum vegna náttúruhamfara og flóða bitnar það á ferðaþjónustu, flutningafyrirtækjunum, landbúnaði og einstaklingum. Við aðstæður sem þessar þurfa allir aðilar að beita ítrustu útsjónarsemi til að lágmarka tjón og truflun og leita leiða til lausna. Vegagerðin hefur þegar brugðist hratt við og nýtur fyllsta trausts samgönguyfirvalda og ríkisstjórnarinnar allrar.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira