Hera, Erpur og Haffi Haff saman í Gay Pride-laginu 25. júlí 2011 12:00 Hera Björk, Erpur Eyvindarson og Haffi Haff flytja Gay Pride-lagið í ár sem nefnist Finnum ástina. Hera er ánægð með samstarfið og segir Erp ljúfari en lamb. „
Erpur er ljúfari en lamb. Það á nú yfirleitt við um svona pörupilta. Þeir eru alltaf mjög ljúfir í samstarfi," segir söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir um samstarfið við rapparann Erp Eyvindarson. Hera, Erpur og Haffi Haff leiða saman hesta sína í Gay Pride-laginu í ár sem nefnist Finnum ástina. Hinsegin dagar fara fram í Reykjavík dagana 4. til 7. ágúst. Hera og Erpur sömdu lagið ásamt Örlygi Smára, Pétri Erni og Valgeiri Magnússyni. Hera segir samstarfið hafa gengið mjög vel og verið afar skemmtilegt. En fara þau vel saman í lagi, saklausa sveitastelpan og strigakjafturinn úr Kópavogi? „Ég veit ekki með saklausu sveitastelpuna? En já, er þetta ekki þessi klassíski dúett?" Og svo glyshomminn með? „Já. kyndilberinn sjálfur. Þetta er hið besta mál. Við erum með samkynhneigð, gagnkynhneigð, rappara, brjálæðinga og dívur af öllum kynjum. Og úr öllum trúarfélögum," segir Hera og hlær. „Það er kannski kominn tími til að gagnkynhneigðir sýni samstöðu í verki og syngi Gay Pride-lagið. Við erum hópur mjög sterkra gagnkynhneigðra einstaklinga sem styðjum málstaðinn þeirra, bæði flytjendur og lagahöfundar. Þetta er samfélagið í dag, það er að breytast hægt en örugglega. Við erum að fatta það, að ást er ást, hvernig sem á hana er litið." Hera er gríðarlega ánægð með lagið sem hún segir partívænt með grípandi viðlagi. „Boðskapurinn er ástin, rómantíkin og gleðin í loftinu," segir hún. „Ég er búin að vera að syngja lagið á ensku í Bandaríkjunum og Þýskalandi og í Hrísey. Það eru allir ánægðir með þetta og kunna lagið strax. Byrja að syngja strax í fyrsta viðlagi, sem er góðs viti."atlifannar@frettabladid.isFrumsýning á Vídói Merzedes Club Haffi Haff
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Fleiri fréttir Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Sjá meira