Cheryl Cole dregur sig í hlé 1. júní 2011 09:00 Cheryl Cole hefur sett Simon Cowell út af sakramenntinu og vill ekki tala við hann eftir að hafa verið rekin úr bandaríska X-Factor. Baulað var á Cowell í Britain's Got Talent og áhorfendur lýstu yfir stuðningi sínum við Cole. Cowell er þar með kominn í hóp með Ashley Cole, sem fær reglulega að finna fyrir hatri í sinn garð á enskum knattspyrnuvöllum eftir að hafa svikið Cheryl í tryggðum.
Breska söngkonan Cheryl Cole hyggst láta lítið fyrir sér fara eftir að hún var óvænt rekin úr bandaríska X-Factor. Baulað var á Simon Cowell í Bretlandi nýverið. Breska þjóðin er æf yfir þeirri meðferð sem söngkonan Cheryl Cole fékk í Bandaríkjunum. Hún var látin taka hatt sinn og staf eftir nokkra þætti af ameríska X-Factor þar sem framleiðendur voru handvissir um að fólkið í Ameríku myndi ekki skilja þykkan „geordie"-hreim söngkonunnar, en það kallast talandi fólks frá iðnaðarborginni Newcastle. Sá orðrómur gekk einnig fjöllum hærra að Cole hefði verið of þung og að hún hefði þjáðst af heimþrá en flestir fjölmiðlaspekingar eru sammála um að hreimurinn hafi orðið henni að falli. Cole hefur verið í miklu uppáhaldi hjá Bretum. Til að mynda er baulað á fyrrverandi eiginmann hennar, Ashley Cole, hvar sem hann stígur niður fæti á enskum knattspyrnuleikvöngum en hann er bakvörður hjá Chelsea. Simon Cowell, hinn heimsfrægi skaphundur úr Idolinu, gæti verið kominn á sama stall því áhorfendur raunveruleikaþáttarins Britain's Got Talent bauluðu á sjónvarpsmanninn þegar hann gekk í sjónvarpssalinn á mánudagskvöld þar sem hann er hluti af dómnefndinni. Sjálfur viðurkenndi hann að Cole ætti sennilega aldrei eftir að tala við sig aftur. „Hún er búin að fá nóg af mér," hefur breska blaðið The Sun eftir honum.Náinn vinur Cowells greinir jafnframt frá því að sjónvarpsmógúllinn hafi ítrekað reynt að ná tali af Cole en án árangurs. „Cowell líður mjög illa yfir því sem gerðist, hann veit að þetta var klúður en hún vill ekkert hlusta á hann. Þau voru mjög náin og töluðu reglulega saman í síma en nú vill hún ekki heyra á hann minnst. Honum líður eins og hann hafi misst ástvin." Samkvæmt heimildum The Sun ákvað Cheryl að horfa ekki á Simon Cowell í sjónvarpinu heldur kaus að leita eftir hentugum sumarfrísstöðum á netinu. „Hún hefur bara notið þess að vera í faðmi fjölskyldu sinnar og náinna vina, hún er bara að slaka á. Henni finnst illa að sér vegið og er eiginlega búin að fá nóg af þessu miskunnarleysi skemmtanabransans. Núna vill hún bara eyða smá tíma með fólki sem hún treystir." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Fleiri fréttir Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Sjá meira