Meira af öllu frá Bon Iver 23. júní 2011 08:30 Önnur plata Bon Iver, samnefnd hljómsveitinni, er nýkomin út.
Önnur plata Bon Iver er komin út. Hún var tekin upp í gamalli innisundlaug skammt frá æskuheimili forsprakkans Justins Vernon í Wisconsin-ríki. Bon Iver hefur gefið út aðra plötu sína og er hún samnefnd hljómsveitinni. Hún var tekin upp í fyrrum dýralæknastofu í bænum Fall Creek í Wisconsin sem forsprakkinn Justin Vernon og bróðir hans keyptu árið 2008 og breyttu í hljóðver. Aðalupptökurýmið er í gamalli innisundlaug sem tengdist læknastofunni. Hljómar ekki ósvipað og Sundlaugin sem Sigur Rós hefur lengi notast við. „Að vinna á þessum stað sem við byggðum upp veitti okkur mikið frelsi,“ sagði Vernon. „Hann er bara fimm kílómetrum frá húsinu þar sem ég ólst upp og bara í tíu mínútna fjarlægð frá barnum þar sem foreldrar mínir kynntust.“ Hinn þrítugi Vernon stofnaði Bon Iver árið 2007 eftir að hann hætti í þjóðlagabandinu DeYarmon Edison og sömuleiðis með kærustunni sinni. Hann langaði að komast í burtu og flutti upp í fjallakofa föður síns. Þar fékk hann hugmyndina að Bon Iver-nafninu, samdi lágstemmd kassagítarlög og texta þar sem sambandsslitin voru krufin til mergjar. Eftir að hafa fengið góð viðbrögð við lögunum hjá vinum sínum gerði hann samning við fyrirtækið Jagjaguwar sem gaf út plötuna For Emma, Forever Ago árið 2008. Hún fékk mikið lof gagnrýnenda og lagið Skinny Love naut sérstakra vinsælda. Rapparinn Kanye West var einn þeirra sem sperrti eyrum og fékk Vernon til að aðstoða sig á síðustu plötu sinni, My Beautiful Dark Twisted Fantasy, með góðum árangri. Flottir tónlistarmenn aðstoðuðu Vernon við upptökurnar á nýju plötunni og hann segir þá eiga alveg jafnmikinn hlut í Bon Iver-verkefninu og hann sjálfur. Eiga þeir það sammerkt að hafa unnið með virtum flytjendum á borð við Tom Waits, Arcade Fire, Sufjan Stevens, Antony and the Johnsons og The National. Útsetningarnar eru fjölbreyttari en áður og elektróník kemur við sögu. Andrúmsloftið er engu að síður svipað og á For Emma, Forever Ago þar sem notaleg falsettu-rödd Vernons svífur yfir vötnunum. Platan hefur fengið mikið lof gagnrýnenda. The Guardian gefur henni fullt hús, eða fimm stjörnur, Uncut sömuleiðis og Pitchfork splæsir á hana 9,5 í einkunn af 10 mögulegum. Tímaritin Mojo og Q eru einnig hrifin og gefa henni fjórar stjörnur af fimm á meðan Rolling Stone límir á hana þrjár og hálfa stjörnu og segir að á henni sé meira af öllu en á síðustu plötu. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Lífið Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Lífið Met Gala-bölvunin alræmda Tíska og hönnun Hittu sjálfan Jacquemus í New York Tíska og hönnun Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Lífið Ástin sem hjálpar mittismálinu Áskorun Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Lífið Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Lífið Fleiri fréttir Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Sjá meira