Sjá Big Lebowski-leikara í New York Freyr Bjarnason skrifar 8. ágúst 2011 09:45 Svavar Helgi Jakobsson og Ólafur Sverrir Jakobsson eru á leiðinni í pílagrímsför til New York. fréttablaðið/valli „
Við erum búnir að panta flug og miða og hótel. Þetta verður algjör snilld,“ segir Svavar Helgi Jakobsson. Hann og vinur hans Ólafur Sverrir Jakobsson eru á leiðinni í mikla pílagrímsför. Þeir verða viðstaddir stóra hátíð í New York um miðjan ágúst þar sem allt leikaralið gamanmyndarinnar vinsælu The Big Lebowski verður samankomið. Sjálfir hafa þeir félagar skipulagt Big Lebowski-hátíðir hérlendis undanfarin ár en myndin hefur öðlast költstöðu meðal aðdáenda hennar víða um heim. Yfir eitt hundrað manns sóttu fimmtu hátíðina sem var haldin í Keiluhöllinni í mars síðastliðnum. Leikararnir Jeff Bridges, John Goodman, Steve Buscemi og Julianne Moore verða öll stödd í Hammerstein-salnum í New York 16. ágúst þar sem þau munu svara spurningum úr salnum. Daginn áður verður haldið keilupartí og búningakeppni og munu þeir Ólafur og Helgi að sjálfsögðu taka þátt í báðum viðburðunum. „Við ætlum að reyna að grafa upp einhverja góða spurningu til að spyrja þau fyrst þau sitja fyrir svörum,“ segir Svavar spenntur. Lebowski-hátíðir hafa verið haldnar árlega síðustu tíu ár í Bandaríkjunum en þetta verður í fyrsta sinn sem Svavar og Ólafur mæta. Einnig er afar sjaldgæft að leikarar úr myndinni mæti á slíkar hátíðir. Ástæðan fyrir komu þeirra nú er ný útgáfa myndarinnar á Blu-ray-mynddiski, auk þess sem Jeff Bridges, sem lék hinn húðlata friðarsinna The Dude, er að gefa út sólóplötu. „Maður er að vona að hann taki upp gítarinn og jafnvel sloppinn líka. Það væri draumurinn,“ segir Svavar.
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira