Atkvæðin hrynja inn í lagakeppni fyrir strákana 20. maí 2011 11:00 Friðrik Dór, Pollapönk, Dr. Spock og Mixed Emotions eiga lög í keppni Þórðar Helga um nýtt stuðningsmannalag fyrir U21 landslið karla í fótbolta.
Landslið Íslands í fótbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins í sumar. Fjögur stuðningsmannalög hafa verið samin fyrir liðið og eru þau komin í keppni á Rás 2. „Þátttakan í kosningunni er alveg svakalega mikil," segir Þórður Helgi Þórðarson, útvarpsmaður í íþróttaþættinum Sportrásin á Rás 2. Þórður leitaði á dögunum til hljómsveitanna Pollapönk, Dr. Spock, Mixed Emotions og söngvarans Friðriks Dórs um að semja stuðningslög fyrir U21 landslið karla í fótbolta, en liðið leikur á lokamóti Evrópukeppninnar í Danmörku í júní. Hægt er að hlusta á lögin fjögur á vef Sportrásarinnar og atkvæðin hrynja inn. En hvað varð til þess að Þórður blés til keppninnar? „Það var nú eiginlega óvart," segir hann. „Ég fékk í hendurnar fullt af boltalögum. Þau eiga sameiginlegt að vera ekki frábær og ég fór að pæla í hvort það sé hægt að gera gott boltalag." Í fyrstu ætlaði Þórður að láta hlustendur senda inn frumsamin lög, en slík keppni með lögum Bob Dylan fór í gang um svipað leyti og því ekki hægt að leggja á hlustendur að taka þátt í tveimur keppnum. „Þannig að ég pikkaði í þá sem ég vildi heyra semja svona lag," segir Þórður. Og kemur það ekki betur út? „Það kemur miklu betri músík. En þeir eru með meira vesen yfir smáatriðum." Kosningin stendur yfir þangað til á miðvikudag í næstu viku og verður sigurvegarinn tilkynntur í Sportrásinni daginn eftir. Lögin eru afar metnaðarfull, en kom það Þórði á óvart? „Ekki metnaðurinn, en gæðin. Venjulega finnst mér þessi lög leiðinleg, en þessi eru góð." Átt þú þér uppáhaldslag í keppninni? „Já." Ætlarðu að gefa það upp? „Nei." atlifannar@frettabladid.isÓttarr Proppé, söngvari Dr.Spock.
Mest lesið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Lífið Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sjá meira