Fjarstýrir skemmtistað í Köben úr 101 Reykjavík 8. júlí 2011 13:00 Dóra Takefusa er flutt heim til Íslands eftir fjögur ár í Kaupmannahöfn. Hún rekur áfram skemmtistaðinn Jolene. Mynd/Stefán „
Það er æðislegt að vera komin heim," segir Dóra Takefusa, athafnakona og eigandi skemmtistaðarins Jolene í Kaupmannahöfn, en hún er flutt heim að nýju eftir fjögurra ára dvöl í Danmörku. Dóra segir að meginástæða heimkomunnar hafi verið söknuðurinn eftir fjölskyldu og vinum. „Það var farið að toga í að koma heim. Það gekk rosalega vel í Danmörku og við höfðum það mjög gott þar, en stundum eru það bara fjölskyldan, vinirnir, vatnið og ferska loftið sem toga of fast í mann og það er þá sem maður kemur heim," segir Dóra, sem ætlar að halda áfram rekstri Jolene þótt hún búi hér. „Ég ætla að fjarstýra Jolene frá Íslandi. Öll mín vinna fer yfirleitt bara fram við tölvuna eða símann, svo það skiptir í raun og veru ekki máli hvort ég vinn í Nörrebro eða hér í 101 Reykjavík," segir Dóra, sem ætlar fyrst um sinn að fljúga út mánaðarlega og dvelja í Kaupmannahöfn nokkra daga í senn. Um fjögur ár eru síðan Dóra flutti til Kaupmannahafnar og opnaði Jolene. Frá upphafi naut staðurinn mikilla vinsælda og var tilnefndur til ýmissa verðlauna þar ytra. „Á sínum tíma var mikil sprengja í þessum geira og allt var nýtt og öðruvísi. Þó svo að Jolene sé ekki gamall staður, þá er hann orðinn eins og Prikið og Kaffibarinn eru hér heima," segir Dóra og bætir við að í Danmörku sé það ekki algengt að skemmtistaðir eða barir haldi vinsældum eða stemningu til lengri tíma, svipað og gerist hér á landi. Dóra segir það gott að vera komin aftur í ferska loftið. „Þetta er æðislegt. Ég er fegin að vera komin heim og að geta kælt mig niður. Sumrin í Danmörku eru heit og með svo miklum raka. Ferska loftið hér er yndislegt," segir Dóra sem kom til landsins á þriðjudag. „Núna ætlum við að fara í smá ferðalag út á land. Ætlum að koma við á Bestu útihátíðinni og fara svo á smá meira flakk." kristjana@frettabladid.is
Mest lesið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Heillandi arkitektúr í Garðabæ Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Fleiri fréttir „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Sjá meira