Skráningu fornminja áfátt 8. júlí 2011 05:30 Reykjanesið telst til álitlegustu virkjunarkosta í 2. áfanga rammaáætlunar. Í Svartsengi - Eldvörpum eru einstakar friðlýstar minjar eftir útilegumenn sem mikilvægt er að varðveita til framtíðar. Við Krýsuvík er einnig að finna friðlýst minjasvæði. Mynd/heiða
Ísland, eitt Norðurlandaríkjanna, hefur ekki lokið tæmandi fornleifaskráningu. Við gerð 1. og 2. áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða vegna orkunýtingar þurftu fornleifafræðingar því að reiða sig á heimildarskráningu fornleifafræðinga 19. aldar. Minjayfirvöld telja sig hafa litlar forsendur til að svara því hvaða menningarverðmæti verði fyrir skaða við þá virkjunarkosti sem áætlunin fjallar um. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins, segir stöðuna í raun sorglega og að ástæðan fyrir því hversu aftarlega Íslendingar eru við skráningu fornminja sé að ekki hafi verið veitt nauðsynlegu fjármagni til slíkrar vinnu. Tími og peningar segir Kristín að sé ekki sérstakt vandamál. Athugun Fornleifaverndar fyrir nokkrum árum leiddi í ljós að um fimm ár þarf til að ljúka fullnaðarskráningu og áætlaður kostnaður þeirrar vinnu var 400 milljónir. Hún gagnrýnir jafnframt hart það misvægi sem er á fjárframlögum ríkisins. „Af því fjármagni sem ríkið ætlar til umhverfisins fá minjarnar þrjú prósent. Og það er merkileg staðreynd þegar við höfum reynt um árabil að fá fjármagn til að ljúka grundvallarskráningu fornminja," segir Kristín. Náttúra og minjarÍ greinargerð sem Kristín skrifaði, og fylgir skýrslu verkefnastjórnarinnar, er bent á að horfa beri á umhverfi og landslag í víðara samhengi en gert hefur verið og að minjar verði teknar inn til jafns við náttúru í allri framtíðarvinnu varðandi umhverfi landsins og nýtingar þess. Grunnforsenda þess að hægt sé að taka ákvarðanir um menningararfinn sé að þekkja hann. „Það gefur auga leið að til þess að vernda menningarminjar þurfum við að vita hvar þær eru, hverjar þær eru og í hvernig ástandi þær eru," skrifar Kristín. Gróflega er áætlað að fornleifar á Íslandi, minjar sem eru 100 ára og eldri, gætu verið um 200 þúsund. Þær dreifast um landið allt, jafnt um byggð sem óbyggðir. FornfræðingarStór hluti þeirra svæða sem komu til umfjöllunar í 1. áfanga rammaáætlunar var óskráður og er það enn nú þegar 2. áfanga er lokið og til stendur að undirbúa þingsályktunartillögu um hvernig nýta skuli náttúruna með vali á virkjunarkostum. Við mat á svæðum þar sem gufuaflsvirkjanir koma til greina höfðu fornleifafræðingar í sumum tilfellum ekki annað á milli handanna en skráðar heimildir fornfræðinga 19. aldar þar sem grunnrannsókn hefði verið nauðsynleg. Þar sem vatnsaflsvirkjanir koma til greina höfðu fornleifafræðingar lítið sem ekkert að styðjast við. „Það er ótækt og óforsvaranlegt að fornleifafræðingum á 21. öld sé gert að vinna við þessar aðstæður," segir Kristín og bætir við að minjayfirvöld hafi ekki forsendur að óbreyttu til að meta hvort menningarminjar verði fyrir skaða vegna virkjanaframkvæmda sem til greina komi. FerðaþjónustaFornleifar og menningarlandslag eru þáttur í menningarferðaþjónustu allra landa og telur Fornleifavernd vert að minna á að á sama tíma og farið er með það sem heilagan sannleik að 80 prósent ferðamanna segjast hafa áhuga á íslenskri náttúru þá segist stór hluti sama hóps hafa áhuga á íslenskri menningu og sögu. Það er því mat Fornleifaverndar að í framtíðarvinnu með rammaáætlun sé eðlilegt að fjallað um menningarminjar til jafns við náttúru þegar lagt verði mat á ferðaþjónustu á Íslandi. „Í raun má segja að við búum við gervimennsku því það er verið að búa til sögustaði og söfn á meðan ekkert er gert fyrir sjálfar fornleifarnar sem við eigum. Það er öfugsnúið," segir Kristín.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Fleiri fréttir Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Sjá meira