Blása nýju lífi í Gamla bíó 18. ágúst 2011 10:30 Systkinin Signý og Óskar Eiríksbörn hlakka til að opna Gamla bíó á ný. Fréttablaðið/valli
Tvö leikverk verða frumsýnd á fjölum Gamla bíós í haust. Fræg íbúð á efstu hæð hússins verður til leigu undir listasýningar og móttökur. „Við röltum oft framhjá þessu virðulega húsi og veltum fyrir okkur hvað yrði um það. Við sóttum um að fá það leigt og erum hæstánægð með að opna það að nýju,“ segir Signý Eiríksdóttir verkefnastjóri Leikhúsmógulsins. Signý ætlar, ásamt bróður sínum Óskari Eiríkssyni, framkvæmdastjóra Leikhúsmógúlsins, að blása nýju lífi í gamla húsnæði Íslensku óperunnar við Ingólfsstræti eða Gamla bíó. „Íslensku óperunni var mikið í mun að það yrði áfram menningartengd starfsemi í húsinu. Við erum smám saman að komast í gang og ráða fólk,“ segir Signý og bætir við að húsið sjálft hafi útgeislun sem er engri lík. „Það er eitthvað alveg sérstakt við það að vera í Gamla bíói, saga hússins og hvernig það hefur verið varðveitt gefur því glæsibrag sem einfaldlega er ekki til annars staðar á landinu.“ Leikhúsmógúllinn er fyrirtæki sem einbeitir sér að framleiðslu og uppsetningu leiksýninga út um allan heim. Fyrirtækið var stofnað árið 2000 á Íslandi en er nú með útibú í Þýskalandi, Sviss og Bandaríkjunum. „Rekstur Gamla bíós er mikilvægur en aðeins hluti af starfsemi okkar. Húsið verður fyrst og fremst notað sem leikhús en það verða aðrir viðburðir í húsinu í vetur svo sem tónleikar, danssýningar og ýmiss konar listviðburðir,“ segir Óskar. Tvö leikverk verða frumsýnd í Gamla bíó í haust, „Sexy Laundry“ í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur og glænýr íslenskur gamansöngleikur byggður á hljómplötu Hrekkjusvínanna „Lög unga fólksins“ frá 1977. Á efstu hæð Gamla bíós er íbúð en þar er að finna einar stærstu svalir Reykjavíkur með útsýni yfir alla borgina. „Íbúðin á efstu hæð verður notuð í tengslum við leiksýningar og æfingar fyrst um sinn en hugmyndin er að það verði hægt að leigja hana undir móttökur, listasýningar og fleira seinna í vetur. Ætlunin er líka að opna húsið meira fyrir almenningi og jafnvel koma fyrir borðum og stólum í anddyrinu þar sem fólk getur komið við, fengið kaffi og spjallað.“ alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Lífið Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Lífið Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Lífið Fleiri fréttir Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Sjá meira