Bera hag Íslands fyrir brjósti 9. júní 2011 06:00 Engar áhyggjur Lára Rúnarsdóttir og President Bongo þurfa engar áhyggjur að hafa þótt Inspired by Iceland komi ekki nálægt tónleikunum í Búlgaríu; tónleikahaldarinn Vasilev ábyrgist að tónleikarnir verði með glæsilegasta móti.
Núningurinn milli búlgarska tónleikahaldarans og Íslandsstofu virðist til lykta leiddur. Tónleikahaldarinn lofar góðu stuði og segist aðeins hafa ætlað að kynna Ísland og íslenska menningu. „Þetta er bara einhver leiður misskilningur og ég er búinn að ræða við þau hjá Íslandsstofu og útskýra fyrir þeim hvernig í málinu liggur," segir Simeon Vasilev, ritstjóri DJ MAG Bulgaria og forsprakki 17. júní-tónleika á offiseraklúbbnum í miðborg höfuðborgarinnar Sofiu. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá stendur til að halda þjóðhátíðardag Íslendinga hátíðlegan í Búlgaríu með tónleikahaldi, sem er allt gott og blessað nema að í búlgörskum fjölmiðlum var því haldið fram að landkynningarverkefnið Inspired by Iceland kæmi að þessum tónleikum, sem skarta meðal annars Láru Rúnarsdóttur og plötusnúðnum President Bongo. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður markaðssóknar hjá Íslandsstofu, vísaði því hins vegar á bug að Inspired by Iceland kæmi nokkuð nálægt þessu og bætti því við að vörumerkið hefði aldrei verið notað án vitundar Íslandsstofu áður og að málið yrði skoðað í framhaldinu. Fréttablaðinu barst í gær yfirlýsing frá Ingu Hlín þar sem kemur fram að hvorki Inspired by Iceland né Íslandsstofa setji fjármagn í viðkomandi viðburð. „Við höfum kannað málið og allt var þetta með góðum vilja viðkomandi tónleikahaldara að hafa merki Inspired by Iceland í auglýsingu viðburðarins. Við gerum ekki athugasemdir við þetta og vonum að tónleikarnir takist sem allra best í landkynningarskyni og fyrir þær íslensku hljómsveitir sem taka þátt." Vasilev segir að Inspired by Iceland hafi aldrei komið neitt nálægt þessu, það sé íslenski konsúllinn í Búlgaríu sem standi við bakið á tónleikahöldurum og greiði fyrir tónleikana úr eigin vasa. Sjálfur hafi hann mikla reynslu af tónleikahaldi og hann tekur skýrt fram að þjóðhátíðardansleikurinn verði með glæsilegasta móti; öllu verði kostað til. „Við viljum ekki vera með nein leiðindi heldur ætlum bara að kynna Ísland og íslenska menningu. Við berum hag Íslands fyrir brjósti." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Fleiri fréttir Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Sjá meira