Erpur til Danmerkur að hvetja landsliðið 9. júní 2011 08:00 Hvetur landsliðið til dáða Erpur Eyvindarson er á leiðinni til Danmerkur ásamt fríðu föruneyti. Hann kemur meðal annars fram í Árósum eftir leik Íslands og Hvíta-Rússlands á Evrópumóti landsliða undir 21. „
Þetta eru gæjarnir sem ég hitti á tónleikum og eru með á nótunum,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson um U21 landslið Íslands í fótbolta. Erpur er á leiðinni til Danmerkur ásamt félögum sínum Lúlla og Þorsteini í XXX Rottweiler. Rappararnir 7Berg og U-Manden taka á móti þeim í Danmörku og hópurinn kemur fram á Blasen í Kaupmannahöfn á morgun. Daginn eftir halda þeir svo til Árósa, þar sem þeir koma fram á V58 eftir leik Íslands og Rússlands á Evrópumóti U21 landsliða. „Þar verður haldið áfram að peppa hið eiginlega landslið, sem hegðar sér eins og landslið,“ segir Erpur. Erpur er spenntur fyrir ferðinni og fullyrðir að strákarnir í U21-landsliðinu séu kynslóðin hans. „Þetta eru ekki gæjarnir sem voru að hlusta á Stjórnina í leikhléum, það hefur haft sín áhrif,“ segir hann. „Þess vegna verða þessir gæjar í íþróttahreyfingunni að passa sig á því að vera ekki að ota einhverri pulsumúsík að íþróttamönnum. Gæjarnir sem eru að gera eitthvað af viti eru þeir sem eru að hlusta á rappið — Blaz Roca og Rottweiler.“ Er þetta kynslóðin sem var óttast um þegar Rottweiler kom fram á sjónarsviðið upp úr aldamótum? „Já, nefnilega. Þetta eru þvílíkir fagmenn, gull af mönnum og þeir eru mjög reglusamir og agaðir, en hlusta á góða músík. Punkturinn er að það er alltaf verið að ota mannaskít í nótnaformi að íþróttahreyfingunni. Tónlistin mín er engin jafnteflistónlist.“ Og telurðu að þú getir orðið að liði? „Ekki spurning. Þessir gæjar eru að gera okkur geðveikt stolt. Ég vil peppa þá til baka, þakka fyrir mig.“- afb
Mest lesið Hipsumhaps rýfur þögnina Tónlist Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Jeremy Clarkson hefur greinst með illkynja krabbamein Bíó og sjónvarp Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning „Ég er skíthræddur“ Tónlist John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Sjá meira