Brúðarmær í krísu 9. júní 2011 05:00 Litríkir persónuleikar Annie Walker, sem Kristen Wiig leikur, tekst á við það að vera aðalbrúðarmærin með hjálp litríkra vinkvenna brúðarinnar, með skemmtilegum afleiðingum.
Undirbúningur brúðkaups getur verið skrautlegur, en því fær Annie Walker að kynnast þegar hún tekur að sér hlutverk aðalbrúðarmeyjar í brúðkaupi æskuvinkonu sinnar. Með vinsælustu grínleikkonu Bandaríkjanna í fararbroddi, Kristen Wiig, fær myndin Bridesmaids góða dóma gagnrýnenda. Annie Walker er einhleypur kökubakari sem vinnur fyrir sér í skartgripabúð. Þegar æskuvinkonan Lillian trúlofast og biður Annie að vera aðalbrúðarmær getur hún ekki neitað. Annie fær samt hálfgert taugaáfall þegar hún gerir sér grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir hlutverkinu, enda er tímafrekt að skipuleggja gæsapartí, hjálpa til við að velja kjól og vera einstakur stuðningsmaður verðandi brúðar. Með nokkrum litríkum vinkonum og vandamönnum Lillian hefst Annie handa við skipulagningu samhliða því að takast á við erfiðleika í einkalífinu, en það hrindir af stað fyndinni atburðarás. Aðalleikkona myndarinnar, Kristen Wiig, hefur verið ein af færustu grínleikkonun vestanhafs, en hún er hluti af Saturday Night Live leikhópnum og lék meðal annars í Flight of the Conchords. Wiig fær mikið lof fyrir leik sinn í myndinni og er kölluð gyðja grínsins í dómi Rolling Stone. Í öðrum helstu hlutverkum eru þær Maya Rudolph, Rose Byrne, Melissa McCarthy, Wendi McLendon-Covey og Ellie Kempe. Leikstjóri Bridesmaids er Paul Feig, sem er með myndir á borð við Knocked Up og sjónvarpsþættina Arrested Development á ferilskránni. Gagnrýnendur lofa myndina í hástert. Miðlar á borð við Entertainment Weekly og Wall Street Journal gefa henni til að mynda fullt hús stiga, en meðaleinkunnin er 74 stig af 100 mögulegum.alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira