Limp Bizkit snýr aftur 9. júní 2011 22:00
Limp Bizkit er hljómsveit sem fólk annað hvort hataði eða elskaði. Hljómsveitin var gríðarlega vinsæl fyrir rúmum áratug en tilraunir til að endurheimta fyrri vinsældir hafa mistekist. Nú er liðsskipan Limp Bizkit sú sama og árið 2000 og ný plata á leiðinni. Árið 2008 sendu Fred Durst og Wes Borland, prímusmótorar Limp Bizkit, frá sér sameiginlega yfirlýsingu: „Við höfum ákveðið að okkur býður meira við þungri tónlist í dag en við hvorum öðrum. Óháð því hvert aðskildar leiðir okkar hafa leitt okkur viðurkennum við að í þessum hópi fólks er kraftmikil og einstök orka sem við höfum ekki fundið annars staðar. Þess vegna hefur Limp Bizkit snúið aftur." Í kjölfarið hófst vinna að Gold Cobra, sjöttu plötu Limp Bizkit og þeirri fyrstu með upprunalegri liðsskipan síðan Chocolate Starfish and the Hot Dog Flavored Water kom út árið 2000 (á henni var meðal annars smellurinn Rollin' en myndbandið við hann má sjá hér fyrir ofan). Tvær plötur komu út í millitíðinni, Results May Vary árið 2003 og The Unquestionable Truth (Part 1) árið 2005. Þær seldust illa, enda var tónlistarstefnan numetal, sem Limp Bizkit var í forsvari fyrir, dauð. Fred Durst hefur verið duglegur við að senda frá sér lög og brot úr lögum af Gold Cobra og það verður að segjast að ekkert hefur breyst. Limp Bizkit er enn þá Limp Bizkit og nú er spurning hvort aðdáendahópurinn, sem var talsvert yngri þegar hljómsveitin var upp á sitt besta, ranki við sér. Hljómsveitin var ein sú vinsælasta í heimi um síðustu aldamót en þarf að heilla nýja kynslóð til að komast aftur á sama stall. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira