Lávarðurinn Eyfi tekur Valdimar undir sinn væng 1. júlí 2011 12:00 Eyjólfur Kristjánsson og hljómsveitin Valdimar, með söngvarann Valdimar Guðmundsson í fararbroddi, spila saman á Innipúkanum. Ekki er ósennilegt að köflóttar skyrtur verði einkennisklæðnaður þessa óvænta bræðings. Mynd/GVA „
Þetta leggst mjög vel í mig. Það verður gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir popparinn Eyjólfur Kristjánsson. Hann verður heiðursgestur tónlistarhátíðarinnar Innipúkans um verslunarmannahelgina og stígur þar á svið með hljómsveitinni Valdimar. „Þeir eru tiltölulega nýir í bransanum en ég er gamall „lord“. Ég er búinn að heyra mikið í þeim í útvarpinu og ég hef bara gaman af þeim,“ bætir Eyfi við. Þetta verður í fyrsta sinn sem hann spilar á Innipúkanum. „Ég er annálaður útipúkamaður en ég er nýbyrjaður að vera í bænum um verslunarmannahelgina,“ segir Eyfi, sem spilaði lengi vel í Kerlingarfjöllum þessa helgi og síðar meir á Þjóðhátíð í Eyjum. Þar hefur hann ekki verið síðan 2007. Valdimar Guðmundsson, forsprakki Valdimars, hlakkar til að syngja með Eyfa. „Eyfi er einn af þessum toppum í poppinu. Ég veit ekki hvernig ég mun tækla það ef ég fer að syngja með honum Nínu. Ég hef heyrt marga reyna að syngja það lag og mistakast hörmulega,“ segir hann og hlær. Síðasta ár var heiðursgestur Innipúkans sjálfur Raggi Bjarna sem hélt vel heppnaða tónleika með unglömbunum í Retro Stefson og verður því forvitnilegt að fylgjast með samstarfi Eyfa og Valdimars. Eyfi varð fimmtugur í apríl og gaf af því tilefni út safnplötu og fór í tónleikaferð um landið. Innipúkinn fer fram í tíunda skipti í miðborg Reykjavíkur um verslunarmannahelgina. Hátíðin teygir sig að þessu sinni yfir þrjá daga og fer fram föstudags- til sunnudagskvölds, dagana 29.-31. júlí, og verður Iðnó aðaltónleikastaðurinn. Miðasala hefst í dag á Midi.is. Meðal annarra flytjenda á hátíðinni verða Agent Fresco, Apparat, Jónas Sigurðsson, Skakkamanage, Pascal pinon og Snorri Helgason. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira