Segir stjórnvöld fela niðurskurð í heilbrigðismálum Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. júlí 2011 19:16
Formaður Læknafélagsins segir stjórnvöld reyna að fela raunverulegan niðurskurð í heilbrigðismálum. Frá árinu 2002 hefur um þriðjungur íslenskra lækna bæði unnið og verið búsettur erlendis. Eins og sést á grafík með fréttinni hefur þetta verið svipað undanfarin níu ár. En á síðasta ári, jókst hlutfallið upp í 36 prósent. Þetta er vegna þess að yngri læknar með sérfræðimenntun eru ekki að snúa heim í sama mæli og áður. Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands hefur miklar áhyggjur af þróuninni, en læknar eiga í samningaviðræðum við ríkið. Hún segir gæta skilnings- og áhugaleysis á heilbrigðismálum hjá stjórnvöldum. „Ég held ekki að þetta sé tilviljun, ég held þetta sé meðvitað sem það er hætt að tala um heilbrigðismál núna. Það er talað um að velferðinni hafi verið hlíft en málaflokkurinn heilbrigðismál er ekki lengur til. Við skulum ekki gleyma því að það eru ekki aðrir stærri útgjaldaliðir en heilbrigðismál. Það er verið að breiða yfir þá staðreynd að það hefur verið skorið miklu meira niður í heilbrigðismálum en stjórnmálamenn hafa látið í veðri vaka," segir Birna. Liggur ekki í hlutarins eðli að ef það á að skera niður þá þarf að skera niður mest í heilbrigðismálum af því að það er stærsti útgjaldaflokkur ríkisins? „Það eru álíka stórir flokkar eins og menntamál. Báða þessa flokka á að ræða, í hvorum við viljum skera meira niður í. Fólk á að koma að þessari umræðu. Það á ekki að reyna að fela þetta." Birna segir álag á spítölum landsins gjörsamlega óviðunandi. Kjör lækna verði að endurspegla það. Ef það eigi á annað borð að halda uppi viðunandi heilbrigðisþjónustu hér á landi. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira