Þjónusta við sjúklinga forgangur ekki laun lækna Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. júlí 2011 19:24
Byrjunarlaun sérfræðilækna á sumum deildum eru hálf milljón króna. Velferðarráðherra hyggst ekki blanda sér í kjarabaráttu lækna en segir að tekist hafi að verja velferðina með því að draga úr niðurskurði til heilbrigðisþjónustu. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að vissulega sé rétt að margir læknar sinni fleiri verkefnum núna fyrir sömu laun og segist hann því skilja viðhorf þeirra. „Hins vegar þarf að taka fram að niðurskurður til heilbrigðisþjónustu hefur verið miklu minni en annarsstaðar og á þessu ári er hann 1,5 prósent, samkvæmt fjárlögum á sama tíma og velferðarkerfið að öðru leyti um 5 prósent og aðrar stofnanir og ráðuneyti um 10 prósent," segir ráðherrann. Dæmi eru um að séfræðilæknar á ákveðnum deildum séu með rúmlega fimm hundruð þúsund krónur á mánuði í grunnlaun eftir þrettán ára háskólanám. Finnst þér það sanngjarnt? „Ég ætla ekki að leggja mat á einstök laun eða hvernig þau koma inn í launaskalann í heild. Mönnum hefur oft fundist háskólanám illa metið. Ég ætla ekkert að draga úr því að það þarf að skoða það á hverjum tíma en auðvitað þurfa menn þá að skoða heildarkjörin og vinnufyrirkomulagið til þess að meta það hvort að kjör séu sanngjörn eða ekki," segir Guðbjartur. Getur verið að það þurfi að endurskoða forgangsröðunina í ríkisfjármálunum og setja einfaldlega meiri peninga í heilbrigðiskerfið til þess að geta búið þessu fólki viðunandi starfsumhverfi? „Á sama tíma og við missum fimmtung af tekjum íslenska ríkisins og farið í gegnum holskeflu þá bætum við ekki miklu við á meðan. Við höfum, eins og ég sagði, reynt að forgangsraða í þágu heilbrigðisstétta og heilbrigðiskerfisins og þar höfum við fyrst og fremst í huga þjónustu við sjúklingana. Guðbjartur segist ekki hafa orðið var að heilbrigðisþjónusta hafi farið niður fyrir viðmiðunarmörk Landlæknis og engar viðvörunarbjöllur hafi hringt þar. Hann hyggst ekki blanda sér í kjaraviðræður við lækna en segir að ráðuneytið fylgist vel með. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir Segir stjórnvöld fela niðurskurð í heilbrigðismálum Formaður Læknafélagsins segir stjórnvöld reyna að fela raunverulegan niðurskurð í heilbrigðismálum. 1. júlí 2011 19:16 Mest lesið Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Erlent Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Erlent Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Innlent Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Erlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Erlent Fleiri fréttir Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Sjá meira
Segir stjórnvöld fela niðurskurð í heilbrigðismálum Formaður Læknafélagsins segir stjórnvöld reyna að fela raunverulegan niðurskurð í heilbrigðismálum. 1. júlí 2011 19:16