Bjartmar tilnefndur í fyrsta sinn 12. febrúar 2011 09:00 „
Þetta er virkilega flott og maður er bara þakklátur fyrst og fremst. Það er alltaf gott að fá hlýjan hug," segir tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson, sem hefur verið tilnefndur til þrennra Íslenskra tónlistarverðlauna. Bjartmar gaf út plötuna Skrýtin veröld fyrir síðustu jól sem hefur fengið mjög góðar viðtökur. Hann er tilnefndur sem texta- og tónhöfundur ársins og fyrir lag ársins, Konan á allt. Þetta eru fyrstu tilnefningar Bjartmars á löngum ferli og þær komu honum í opna skjöldu. „Ég hafði alls ekki leitt hugann að þessu. Ég frétti þetta þegar ég var að koma af vel heppnuðum tónleikum á Hvanneyri." Verðlaunaafhendingin verður haldin í Þjóðleikhúsinu 8. mars og þar verður Bjartmar á meðal gesta ásamt hljómsveit sinni Bergrisunum. „Að sjálfsögðu mæti ég með strákana. Þetta er þeirra líka, af því að við erum svo frjóir er við vinnum saman," segir hann og bætir við að hljómsveitin sé á leiðinni í hljóðver á næstunni. Ný plata kemur síðar á árinu með tilheyrandi tónleikahaldi í sumar. Bjartmar hefur gefið reglulega út plöturum árin þrátt fyrir að mismikið hafi farið fyrir þeim. Hann naut mikilla vinsælda á níunda áratugnum og núna nýtur hann athyglinnar á nýjan leik „Ég vil bara vera samkvæmur sjálfum mér. Það er númer eitt, tvö og þrjú," segir hann og þakkar félögum sínum í Bergrisunum fyrir sitt framlag, eða þeim Birki Rafni Gíslasyni, Agli Erni Rafnssyni, Júlíusi Frey Guðmundssyni og Halldóri Waren.- fb Hér fyrir ofan má hlusta á lagið Negril af YouTube-síðu Geimsteins.
Mest lesið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Furðubandið sem tryllti netið Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Sjá meira