Brim besta íslenska myndin 3. janúar 2011 00:00
Brim er besta innlenda mynd ársins 2010 samkvæmt álitsgjöfum Fréttablaðsins, með töluverðum yfirburðum. Myndin var frumsýnd 2. október og alls sáu hana hátt í ellefu þúsund manns í bíó. Hún fékk fjórar stjörnur í einkunnagjöf Fréttablaðsins, auk þess sem breska tímaritið Tribune og hið bandaríska Film Quarterly hafa hrósað henni. Hið síðarnefnda sagði: „Brim er heillandi drama sem gerist um borð í fiskibáti. Erfiðleika áhafnarmeðlimanna tengir maður óumflýjanlega við efnahagsástandið í landinu. Þetta er vel leikin mynd og þrátt fyrir að hún sé byggð á leikriti tryggir örugg leikstjórn Árna að verkið gengur upp á hvíta tjaldinu." Brim gerist úti á sjó og fjallar um sjö manneskjur um borð í báti sem rekur vélarvana meðan stormur nálgast. Myndin byggir á samnefndu verðlaunaleikriti Jóns Atla Jónassonar, sem leikhópurinn Vesturport setti upp. Fyrir nokkrum árum ákvað Vesturportshópurinn að gera mynd eftir verkinu og var Árni Ólafur Ásgeirsson, sem áður hafði gert myndina Blóðbönd, fenginn til að leikstýra. Á meðal leikara eru Ólafur Egilsson, Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson. Í öðru sæti yfir bestu myndirnar lenti unglingamyndin Órói í leikstjórn Baldvins Z, sem fékk einnig fjórar stjörnur hér í Fréttablaðinu. Myndin var frumsýnd skömmu á eftir Brimi, 15. október, og aðeins fleiri sáu hana í bíó, tæplega þrettán þúsund manns. Aðrar myndir sem fengu atkvæði í valinu voru Sumarlandið, Mamma Gógó, sem var frumsýnd 1. janúar, og The Good Heart eftir Dag Kára Pétursson. Álitsgjafar: Dögg Mósesdóttir, Erpur Eyvindarson, Freyr Gígja Gunnarsson, Guðni Sigurðsson, Hilmar Oddsson, Hrönn Marinósdóttir, Ívar Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Marteinn Þórsson, Roald Eyvindsson, Sindri Sindrason, Tómas Valgeirsson og Þórarinn Þórarinsson. freyr@frettabladid.isUnglingamyndin Órói lenti í öðru sæti yfir bestu myndirnar.
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira