Gullkálfurinn Kiddi seldi þrjátíu þúsund 7. janúar 2011 10:00 „
Við vorum duglegir strákarnir," segir gítarleikarinn og upptökustjórinn Guðmundur Kristinn Jónsson, eða Kiddi í Hjálmum. Plötur þar sem Kiddi og félagar hans héldu um stjórnartaumana seldust í yfir þrjátíu þúsund eintökum á síðasta ári. Mest seldust nýjar plötur með Hjálmum, Baggalút og Diskóeyjunni, ásamt jólaplötu Sigurðar Guðmundssonar. Söluhæst var Baggalútsplatan Næstu jól sem seldist í um 9.500 eintökum. Hinar þrjár plöturnar seldust í um fjögur þúsund eintökum hver um sig. Þar fyrir utan seldust eldri plötur ágætlega á árinu, þar á meðal með Hjálmum og barnaplatan Gilligill. Kiddi stjórnaði að stórum hluta upptökum á plötunum og spilaði einnig inn á þær. Spurður hvort allt sem hann snerti verði ekki hreinlega að gulli segir hann: „Alls ekki. Ég gerði tribute-plötu til heiðurs Tony Joe White árið 2008 [Minni karla] og hún hefur ekki farið yfir tvö hundruð eintök. Það er stærsta floppið mitt. En það er góð plata og ég er sáttur við hana." Á ekki að reyna að gera enn betur en þrjátíu þúsund eintök á nýju ári? „Verður maður ekki að dobbla þetta?" segir hann og hlær. „Við erum að gera alls konar skemmtilegt. Janúar og febrúar fara oft í að prufa alls konar hluti. Núna kemur tímabil þar sem maður leikur sér." Þess má geta að þrjú gigg hafa verið bókuð erlendis hjá Hjálmum á árinu. Fyrst spila þeir á norsku bransahátíðinni by:Larm um miðjan febrúar og skömmu síðar í Sviss. Í júní verða þeir svo á reggíhátíð í Noregi. „Þeir eru búnir að biðja okkur mjög oft en það hefur aldrei hitt vel á. Núna sögðum við já."- fb
Mest lesið Stór brjóst eru stór Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Sjá meira