Hef aldrei viljað sigra heiminn 10. desember 2011 14:00 Sissel Kyrkjebø söng norska sálminn Til ungdommen í minningarathöfn um fórnarlömbin í Útey en lagið var hálfgert einkennislag þessa mikla harmleiks. Fréttablaðið/GVA
Í hugum margra á Norðurlöndunum eru jólin ekki komin fyrr en Sissel Kyrkjebø er komin á fóninn. Norska söngkonan er komin til landsins, syngur á tónleikum Frostrósa um helgina í Hörpu og segist sjálf vera mikið jólabarn. „Þetta er í fjórða sinn sem ég kem hingað. En ég verð að fara heimsækja landið að sumri til, ég hef alltaf komið hingað á veturna," segir Sissel þegar hún kemur sér fyrir á annarri hæð Hörpu. Hún dásamar húsið um leið og síðustu sólargeislarnir smeygja sér inn en þetta er í annað sinn sem Sissel syngur á jólatónleikum Frostrósa. Hún bætir því við að hún hafi komið í myrkri og sé því þakklát að fá að upplifa smá dagsbirtu. „Ég er búin að lofa dætrum mínum að næst þegar ég fari til Íslands komi þær með." Það lá snemma fyrir að Sissel yrði söngkona, hún vakti ung athygli fyrir rödd sína og sló eftirminnilega í gegn árið 1986 þegar hún söng í hléi Eurovision-keppninnar í Bergen, sama ár og Íslendingar tóku fyrst þátt með Gleðibanka Icey-tríósins. Árið eftir var henni boðið að syngja fyrir hönd Noregs í keppninni. „En ég var búin með Eurovision, ég var líka svo ung, bara sextán ára og langaði að gera svo margt annað eins og að klára skólann. Ég hef heldur aldrei haft þessa hvöt, að verða heimsfræg og sigra heiminn." Ein mesta selda plata Noregs frá upphafi er jólaplata Sissel, Glade Jul, sem kom út árið 1987. Hún hefur í dag selst í meira en einni milljón eintaka. Sissel segist sjálf vera mikið jólabarn og hún elski þennan tíma. „Ég hef hins vegar aldrei leitt hugann að því að vera hluti af jólahaldi fólks en það er bara gaman ef maður hefur þessi áhrif. Ég elska jólalög og hef auðvitað farið í svona jólatónleikaferðlög undanfarin ár. En í ár er það bara Ísland sem ég heimsæki," segir Sissel sem á sér auðvitað sín eigin eftirlætisjólalög. „Heims um ból er í miklu uppáhaldi hjá mér af því að það er svo hreint og maður hefur auðvitað alist upp við það. Ó helga nótt er síðan ákaflega sterkt jólalag." Sissel hefur daðrað við ólíkar tónlistarstefnur, sungið popp, kántrí og jafnvel hipphopp fyrir utan hina hefðbundnu klassík og þjóðlög. Þá er það kannski ekki á allra vitorði að Sissel á heiðurinn af söngnum í tónlist kvikmyndarinnar Titanic. Söngkonan leyfir sér reyndar að efast um að hún eigi einhvern tímann eftir að leggja kántrýið fyrir sig, það hafi verið svolítið skondið hliðarskref. „Ágætis söngkennari sagði mér að röddin mín væri eins og Steinway-flygill. Sem er örugglega eitt mesta hrós sem ég hef fengið. En hún sagði að það væri hægt að spila allar tónlistarstefnur á þennan flygil, þetta væri bara allt spurning um tækni og að eyðileggja ekki hljóðfærið." Hryðjuverkin í Útey og Ósló í sumar vöktu mikinn óhug og Sissel söng í minningarathöfninni fyrir fórnarlömbin sem haldin var í lok ágúst að viðstöddum þjóðhöfðingjum Norðurlandanna. Hún fékk það erfiða hlutskipti að syngja norska sálminn Til ungdommen sem varð hálfgert einkennislag þessa mikla harmleiks. Sissel kemst örlítið við þegar hún er beðin um að rifja upp þessa einstöku stund. „Inni í herberginu þar sem listamennirnir hafast við og nota til að slaka á og spjalla saman var dauðaþögn allan tímann, fólk sat bara og hlustaði. Og þegar nöfnin voru lesin upp þá risu allir úr sætum. Þetta var mjög sérstök en um leið mjög sterk stund." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira