Gefa út frumsamið jólalag 10. desember 2011 23:00 „
Tónlistin er ástríða okkar beggja og við höfum sungið saman frá því að við vorum litlar," segir Greta Mjöll Samúelsdóttir sem myndar dúettinn SamSam ásamt systur sinni Hólmfríði. Systurnar hafa komið fram í einkasamkvæmum um hríð en ákváðu í sumar að fara í stúdíó og taka upp nokkur lög. Eitt af þeim lögum er frumsamið jólalag eftir þær Gretu og Hólmfríði sem nefnist Desember. Lagið hljómar nú í útvarpi og á netinu. Greta Mjöll er í námi í Boston samhliða því að spila fótbolta en hún er landsliðskona í knattspyrnu. Hólmfríður er grunnskólakennari en söngurinn hefur alltaf átt hug þeirra beggja. „Hófí sér um að semja lögin okkar og spilar á píanó en ég spila smá á úkúlele. Ástæðan fyrir að við höfum ekki farið saman í stúdíó fyrr en núna var að okkur fannst við ekki nógu flinkar á hljóðfæri og skorti kjark til að fá til liðs við okkur flinka tónlistarmenn," segir Greta Mjöll en systurnar vöktu fyrst athygli fyrir söng sinn fyrir fimm árum er þær tóku þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna og fluttu lagið Ó María við góðan orðstír. Þá var það Greta Mjöll sem sá um að syngja og Hólmfríður raddaði. „Við tókum upp jólalagið í Stúdíó Ljónshjarta með Þórði Gunnari sem sá einnig um að taka upp Ó María á sínum tíma. Draumurinn er að gefa út okkar eigið efni en nú stefnum við á að koma jólalaginu í útvarpsspilun heima," segir Greta Mjöll. Hún verður úti um jólin og því geta þær systur ekki komið fram opinberlega í kringum hátíðarnar. „Ef eftirspurnin verður mikil er aldrei að vita nema maður hoppi upp í næstu vél," segir Greta Mjöll hlæjandi að lokum.- áp
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira