Charlie Murphy segir sannar sögur í Hörpu 9. júlí 2011 14:00 Bræður Charlie Murphy, til hægri á myndinni, ásamt litla bróður, leikaranum Eddie Murphy. nordicphotos/getty „
Charlie Murphy er mjög fyndinn sögumaður," segir Berang Shahrokni, verkefnastjóri hjá sænska afþreyingarfyrirtækinu Absimilis Entertainment. Absimilis stendur fyrir komu grínistans Charlie Murphy til landsins, en hann treður upp í Hörpu laugardaginn 1. október. Murphy er stóri bróðir leikarans Eddie Murphy og var í fylgdarliði hans á árum áður. Shahrokni sér um uppistandssýningar víða um Evrópu og hefur áður flutt grínista til Íslands. Hann var í föruneyti Pablo Francisco þegar hann tróð upp í Reykjavík í október á síðasta ári og segist hafa fundið fyrir miklum áhuga á bandarísku gríni hér á landi. „Mér fannst því góð hugmynd að flytja fleiri grínista til Íslands," segir hann og bætir við að hann hafi í hyggju að flytja inn stór nöfn til Íslands í framtíðinni. Margir muna eftir Charlie Murphy úr grínþáttunum Chappelle Show, sem sýndir voru á Skjá einum fyrir nokkrum árum. Þar sagði hann meðal annars óborganlegar sannar sögur af tímanum í fylgdarliði bróður síns. Á meðal þeirra sem voru fyrirferðarmiklir í sögunum voru tónlistarmennirnir Rick James og Prince. Shahrokni segir Murphy vera einstakan sögumann og að sá hæfileiki leyni sér ekki í uppistandinu. „Sýningin hans er ólík sýningum annarra grínista. Hún er mjög lík þáttunum E! True Hollywood Stories, en bara miklu fyndnari." Shahrokni segir að Ísland sé nú komið aftur á kortið hjá fyrirtæki hans, eftir óvissu sem skapaðist meðal annars í kjölfar efnahagshrunsins. Þá segir hann tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu hafa mikið að segja og að loksins sé kominn salur sem henti fullkomlega fyrir sýningar sem þessar. „Hingað til hefur ekki verið tónleikasalur í Reykjavík. Það hafa ekki verið margir salir sem virka fyrir listamennina okkar," segir hann. „Harpa er akkúrat það sem Reykjavík þarf á að halda, en ég vildi að þar væri líka fimm eða sex þúsund manna salur." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Lífið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Fleiri fréttir Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Sjá meira