Sorpa reisir dýra gas- og jarðgerðarstöð 9. júlí 2011 09:00 Mikil áhersla hefur verið lögð í að framleiða sem mest gas á Álfsnesi en án nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar yrði Sorpu ekki kleift að vinna gas úr 30 þúsund tonnum af sorpi eftir 2013. mynd/valli
Oddný Sturludóttir Sorpa áformar að reisa gas- og jarðgerðarstöð á Álfsnesi en heildarkostnaður við hana gæti orðið vel á annan milljarð að sögn Bjarna Gnýs Hjarðar, yfirmanns þróunar- og tæknideildar Sorpu. Oddný Sturludóttir, stjórnarformaður Sorpu, segir að stefnt sé að því að stöðin verði reist í áföngum og að vonir standi til þess að einhverjir þeirra verði tilbúnir í júlí 2013 en þá tekur gildi Evróputilskipun um að draga úr urðun á lífrænum úrgangi um helming frá því sem hún var árið 1995. Það ár var slík urðun um 60 þúsund tonn þannig að Sorpa stendur frammi fyrir því að geta ekki urðað 30 þúsund tonn og þar með geta ekki unnið úr því metangas. „Ef þessi stöð verður ekki til staðar árið 2013 þá fer sá möguleiki til spillis að geta unnið gas úr þessum 30 þúsund tonnum en við gætum hins vegar nýtt hann til jarðgerðar,“ segir Bjarni Gnýr. Hann segir þó hug Sorpumanna standa til þess að geta unnið sem mest af metangasi en eftirspurnin eftir því fer hríðvaxandi. Gas- og jarðgerðarstöðin myndi einnig gera Sorpu kleift að nýta úrganginn betur. Til dæmis fer sigvatn til spillis nú um leið og það rennur úr haugnum en í nýrri stöð væri hægt að nýta það einnig til gasvinnslu. „Sveitarfélögin sem standa að Sorpu hafa ekki tekið endanleg ákvörðun um það hversu hratt verður farið í þessa framkvæmd,“ segir Oddný. „Við settum af stað mikla úttekt og greiningu á stöðu byggðarsamlaganna og þeim verkefnum sem fyrir liggja hjá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og við erum að rýna í niðurstöðurnar núna en það liggur ljóst fyrir að öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru tilbúin að koma þessari gas- og jarðgerðarstöð á koppinn í áföngum.“ Oddný segir að fleiri breytingar standi til í sorpumálum hjá íbúum höfuðborgarsvæðisins sem lúti að frekari flokkun sorps. „Þetta verður gert með það fyrir augum að koma verðmætu hráefni, sem ruslið er, til frekari vinnslu,“ segir hún. „Þetta er frábært tækifæri til umhverfisuppeldis í nærumhverfinu þannig að fólki verði ljóst að við eigum ekki að kasta frá okkur rusli heldur losa okkur við það á ábyrgan hátt. Krakkarnir eru núorðið með þetta á hreinu en nú þurfum við fullorðna fólkið að fara að taka við okkur,“ segir Oddný. jse@frettabladid.is
Mest lesið Svikahrappurinn gripinn glóðvolgur og grunaður um fleiri svik Innlent Segir andúð meiri í garð Miðflokksmanna en trans fólks Innlent Kína sendir skilaboð til Bandaríkjanna og Trump svarar um hæl Erlent Drekinn beraði vígtennurnar Erlent Rannsaka stórfellda líkamsárás í Seljahverfi Innlent Segja tilraunir með „fljúgandi Chernobyl“ hafnar Erlent „Við hvað ertu hræddur?“ Innlent Keyrðu hratt á hjólreiðastíg og tóku fram úr reiðhjólamönnum á háannatíma Innlent Tók dóttur sína og erfingja með til Kína Erlent Vegaframkvæmdir við Höfðabakka valdi bæði umferðaröngþveiti og töfum Innlent Fleiri fréttir Fyrsti rafmagnsvörubíll landsins er í Vík í Mýrdal „Við hvað ertu hræddur?“ Nálgunarbannið of torsótt og máttlaust án ökklabands Trump tilnefnir sendiherrann nýja SHÍ gagnrýnir fækkun heilbrigðiseftirlita Samstaða hinsegin samfélagsins, skiptar skoðanir Grindvíkinga og Labubu-æði Reyndust hafa þýfi úr fleiri innbrotum í fórum sínum „Það skiptir máli að vera í réttu bandalagi“ Svikahrappurinn gripinn glóðvolgur og grunaður um fleiri svik Eitt kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu eftir Þjóðhátíð Stuðningurinn við Úkraínu beintengdur öryggi Íslands Dregið hefur úr skriðuhættu Gervigreindin taki undir ranghugmyndir og skorti næmni Svikahrappur bankaði upp á og hafði peninga af eldri borgurum Afsala hollvinasamtökum félagsheimilinu á Flateyri Leita enn manna eftir að hnífur var dreginn upp í Breiðholti Skýra mætti lög um útfarir til að koma í veg fyrir óvissu Vill skylda þá sem sæta nálgunarbanni til að bera ökklabönd Segir andúð meiri í garð Miðflokksmanna en trans fólks Kristrún í Kaupmannahöfn með Selenskí og fleirum Hundruð sprengjusérfræðinga koma saman á Íslandi Húðin gleymi engu og ekki hægt að taka til baka skaðann sem er skeður Kristrún fundar með Selenskí og öðrum leiðtogum í dag Heimilisofbeldi og umsátur varði samfélagið allt Rannsaka stórfellda líkamsárás í Seljahverfi Vegaframkvæmdir við Höfðabakka valdi bæði umferðaröngþveiti og töfum Enn eigi margir eftir að gera upp hug sinn um aðildarviðræður Vonast til að uppsagnir leiði ekki til flutnings fólks af svæðinu Laugarnestangi skrefi nær friðlýsingu Bjarnhólastígur gata ársins í Kópavogi Sjá meira