Jóhann Jóhannsson: Vann með lúðrasveit frá Durham 23. maí 2011 09:00 Jóhann Jóhannsson samdi tónlist við myndina The Miner’s Hymns.
Ný plata tónlistarmannsins Jóhanns Jóhannssonar við myndverkið The Miner‘s Hymns kemur út á mánudaginn. Verkefnið, sem hann vann með kvikmyndagerðarmanninum Bill Morrison, fjallar um kolanámumenn í norðurhluta Englands. „Þetta er verk sem var pantað af festivali í borginni Durham. Ég kannaðist við verkin hans Bills. Hann hefur sérhæft sig í að vinna með efni úr kvikmyndasöfnum og notar gjarnan skemmdar filmur. Mér fannst mjög spennandi að vinna með honum enda höfðaði efnið til mín,“ segir Jóhann. „Við ferðuðumst nokkrum sinnum til Durham, sem er kannski menningarlegur miðpunktur á þessu svæði sem við erum að fjalla um. Við fórum til að kanna jarðveginn, skoða kvikmyndasöfn og hitta tónlistarmenn þaðan,“ segir Jóhann en tónlist hans við stiklu úr kvikmyndinni Battle of Los Angeles sem frumsýnd var á þessu ári vakti mikla athygli á bæði honum og tónlist hans. Jóhann vann með lúðrasveit frá Durham í tengslum við verkefnið og frumflutti með henni The Miner’s Hymns í dómkirkju borgarinnar, sem er um þúsund ára gömul. Nokkrum mánuðum síðar var platan og DVD-mynddiskur með verkefninu tekin upp í kirkjunni. Tónlistarmyndverk Jóhanns og Morrison er sérstætt að því að leyti að ekkert er talað inn á myndina heldur fær tónlist Jóhanns að njóta sín með gömlum myndum frá því kolanámuvinnsla í Norður-Englandi var í blóma á síðustu öld. „Þarna er verið að minnast þessa iðnaðar og lífsstíls sem er horfinn,“ segir Jóhann, sem fékk mjög góða dóma fyrir plötuna hjá BBC. Myndin var frumsýnd á Tribeca-kvikmyndahátíðinni fyrir skömmu og fékk þar einnig góða dóma. Vonir standa til The Miner’s Hymns verði sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í haust.- fb
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira