Charlies-stelpur sitja sveittar við saumamennsku 20. júní 2011 07:00 Í stíl Þær Alma, Klara og Steinunn í stúlknasveitinni The Charlies voru klæddar í hönnun eftir Elísabetu Kristófersdóttur síðustu tónleikum þeirra hér á landi en sjást hér koma fram á afmæliskvöldi Supper Club í búningum sem þær hönnuðu og saumuðu sjálfar en búningarnir minna óneitanlega á sviðsfatnað poppdívunnar Lady Gaga. „
Við vorum að klára tveggja daga upptökutörn en það er nóg að gera hjá okkur þessa dagana,“ segir Alma Guðmundsdóttir, ein af meðlimum hljómsveitarinnar The Charlies en útrás sveitarinnar vestanhafs gengur ágætlega. Nýlega komu stúlkurnar fram á sérstöku meðlimakvöldi skemmtistaðarins Supper Club. „Klúbburinn er einn sá flottasti hér í Hollywood og það er alltaf troðfullt. Það var því mikill heiður fyrir okkur að vera beðnar um að taka lagið á afmæliskvöldi staðarins þar sem mikið var um dýrðir. Risavaxin afmælisterta og kampavínsflaska í súperstærð látin síga niður úr loftinu.“ Þær Alma, Klara og Steinunn vöktu athygli fyrir að klæðast frumlegum búningum á sviðinu. „Búningana hönnuðum við og útfærðum alveg sjálfar. Við erum mjög ánægðar með útkomuna og notuðum hverja lausa stund milli æfinga til að setjast niður og sauma, festa kögur, gadda, keðjur og fjaðrir,“ segir Alma en hugmyndina fengu þær stöllur út frá gallavesti sem Alma keypti sér og klæddist þá um kvöldið. „Við erum mjög samstillar varðandi hvernig við viljum líta út á sviði og getum farið í mikinn ham þegar við erum að spá í útlit okkar á sviði,“ segir Alma og bætir við að þær sitji samt ekki alltaf sjálfar við saumavélina og vinni líka með hönnuðum og stílistum annað slagið. Dagar þeirra Ölmu, Klöru og Steinunnar fara í æfingar og upptökur ásamt því að koma fram á eins mörgum viðburðum og þær geta. „Við höfum verið duglegar við að koma fram á hinum ýmsu viðburðum upp á síðkastið og höfum mjög gaman af því.“ alfrun@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Gagnrýni Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira