Síðbúin útrás Ný danskrar 19. ágúst 2011 12:00 Ný danskir ætla að spila á tónleikum á Bryggen í Kaupmannahöfn 9. september. Fréttablaðið/Anton „
Þetta verður í fyrsta skipti sem við spilum í Kaupmannahöfn Og raunar í fyrsta skipti sem við spilum erlendis síðan við reyndum að meika það á Englandi í „den“. Það næsta sem við höfum komist útlöndum síðan þá eru bara Vestmannaeyjar,“ segir Jón Ólafsson, hljómborðsleikari Ný danskrar. Sveitin, sem verður 25 ára gömul á næsta ári, ætlar að halda tónleika á tónleikastaðnum Bryggen í gamla höfuðstaðnum 9. september næstkomandi. Jón segir þá renna blint í sjóinn með aðsókn en vonast þó til að íbúar gamla höfuðstaðarins kunni að meta heimsókn frá „gömlu brýnunum“ eins og hann kemst sjálfur að orði. „Ég hef trú á því að Íslendingar sem hafa verið búsettir lengi í Danmörku eigi eftir að láta sjá sig.“ Það kann kannski að koma einhverjum á óvart að það skuli vera svona langt síðan Ný dönsk hélt tónleika fyrir utan landsteinana. Á tímum útrásarvíkinga var ekki óalgengt að íslenskum listamönnum væri flogið í starfsmannapartí en Ný dönsk varð þess heiðurs aldrei aðnjótandi. „Við spiluðum náttúrlega í brúðkaupi aldarinnar hjá Jóni Ásgeiri og ég spilaði sjálfur í nokkrum slíkum veislum en við gerðum þetta aldrei saman sem hljómsveit.“ Jón segir að þeir verði allir með á tónleikunum í Kaupmannahöfn. Þeir hafi haft það fyrir reglu síðan Daníel Ágúst snéri aftur í hljómsveitina 2007 að koma helst ekki fram nema fullmannaðir.- fgg
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira