Leikkonan Jessica Biel, 29 ára, var klædd í kjól eftir franska hönnuðinn Roland Mouret á samkomu í Los Angeles í gær eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni.
Eftir að ég var valin kynþokkafyllsta lifandi konan í heiminum gerði ég ráð fyrir að allar dyr myndu opnast fyrir mér. Ég hugsaði með mér: Vá þetta er risastórt tækifæri fyrir mig! En það var alls ekki þannig. Kynþokkinn hjálpaði mér ekki þegar kom að því að fá bitastæð hlutverk í kvikmyndabransanum, sagði Jessica sem hlaut þennan titil árið 2006.
Þá má einnig sjá Jessicu með risastór sólgleraugu á nefinu í fylgd vinkonu í myndasafni.

