Íslenski boltinn

Kristján: Vorum niðurlægðir

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Við vorum hreinlega niðurlægðir í kvöld,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir leikinn gegn Stjörnunni.

„Við gerum allt rangt þegar Stjörnumenn skora sín mörk og sérstaklega þau sem komu  úr föstum leikatriðum".

„Fyrstu fjögur mörkin sem við fengum á okkur voru úr föstu leikatriði sem er algjör skandall. Að menn geti ekki tekið meiri ábyrgð í vörninni og dekka andstæðinginn betur. Við töpuðum öllum návígum í leiknum og fengum í raun ekkert hættulegt færi í kvöld“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×