Íslenski boltinn

Heimir: Sorglegt að fá þetta mark á okkur

Henry Birgir Gunnarsson á Hásteinsvelli skrifar
"Ég er sáttur við strákana og þetta var ágætur leikur hjá okkur. Við vorum skipulagðir og gáfum ekki mörg færi á okkur," sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, eftir jafnteflið gegn KR í kvöld.

"Það var sorglegt að fá þetta mark á okkur. Það var eins og allir hefðu sofnað í tvær sekúndur. Annars voru menn lifandi og vakandi og héldu svæðunum vel.

"Við ætluðum að koma framar á þá en það breyttist allt þegar við missum mann af velli. Leikurinn var fyrir vikið ekki eins skemmtilegur.

"Þessi úrslit halda smá lífi í mótinu en ef KR hefði unnið leikinn þá væri mótið búið. Það er alltaf von," sagði Heimir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×