Íslenski boltinn

Kjartan: Gat ekki hætt eftir að hafa klúðrað dauðafærum

Henry Birgir Gunnarsson á Reykjavíkurflugvelli skrifar
KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason varð fyrir því óláni að fara úr axlarlið í leiknum gegn ÍBV. Kjartan lét kippa sér aftur í liðinn og kláraði leikinn. Hann gerði gott betur en það enda skoraði hann jöfnunarmark KR í leiknum.

"Ég gat ekki farið út af eftir að hafa klúðrað dauðafæri. Sem betur fer náði ég að skora en ég hefði átt að skora fleiri mörk í þessum leik," sagði Kjartan svekkur og sárþjáður er Vísir ræddi við hann á Reykjavíkurflugvelli áðan.

"Það er miklu verra að láta kippa sér aftur í liðinn en fara úr liðnum. Ég harkaði þetta af mér. Ég fékk fína sendingu frá Dofra og hitti skallann vel.

"Það er hundfúlt að vera manni fleiri svona lengi og ná ekki að klára leikinn."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×