Íslenski boltinn

Pepsimörkin: Gaupahornið í "Krikanum"

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gaupahornið var á sínum stað í Pepsi-mörkunum í gær, Guðjón Guðmundsson hefur slegið í gegn með sínum innslögum í þættinum í sumar.

Guðjón brá sér í Kaplakrikann og ræddi við tónlistarmennina Heiðar Örn Kristjánsson og Harald Gíslason sem eru mennirnir á bak við flest stuðningsmannalög FH undanfarin ár.

Þeir félagar hafa samið stuðningsmannalög fyrir Fimleikafélagið undanfarinn níu ár og eru því lögin alls níu talsins. Markmiðið er að gefa út 12 laga disk eftir nokkur ár.

Þeir félagar tóku lagið í gær en hægt er að sjá myndskeið frá Gaupahorninu hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×