Íslenski boltinn

Hreinn: Eigum að þekkja stöðuna tíu á móti ellefu

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta er virkilega svekkjandi, við héldum í 83 mínútur en síðan fór leikurinn,“ sagði Hreinn Hringsson, aðstoðarþjálfari Þórs, en hann stýrði liðinu í kvöld þar sem Páll Viðar Gíslason var staddur erlendis.

„Það er ekkert launungarmál að miðað við þau afföll sem við lentum í fyrir þennan leik þá komum við hingað til að ná í stig. Við eigum heldur betur að vera farnir að þekkja stöðuna 11 á móti 10, en það gekk ekki í dag. Við verðum að skrifa fyrra markið á slæm varnarmistök hjá okkur, en menn töluðu ekki nægilega vel saman“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×