Íslenski boltinn

Albert: Það vita allir að ég er stórhættulegur skallamaður

Stefán Árni Pálsson á Keflavíkurvelli skrifar
„Þetta var langþráður sigur fyrir okkur Fylkismenn,“ sagði Albert Brynjar Ingason, besti maður vallarins í kvöld, eftir leikinn.

„Við höfum sett okkur ný markmið og þau eru að hafa gaman af því að spila fótbolta og safna eins mörgum stigum og við getum. Það vita allir að ég er stórhættulegur skallamaður og menn verða bara að dekka mig betur en þetta“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×