Íslenski boltinn

Baldur: Það var ljúft að sjá boltann í netinu

Stefán Árni Pálsson á Laugardalsvelli skrifar
„Þetta er ólýsanleg tilfinning,“ sagði Baldur Sigurðsson, leikmaður KR, eftir sigurinn í Valitor-bikarnum í dag. KR vann fínan sigur á Þór, 2-0, á Laugardalsvellinum.

„Við vorum í raun lélegri aðilinn allan tímann, en að vinna svona og ná að skora í lokinn er æðislega gaman“.

„Svona er bara boltinn en ég tek að ofan fyrir Þórsurum því þeir voru frábærir í dag og áttu skilið meira útúr þessum leik“.

„Ég hélt að þeir hefðu skotið svona tuttugu sinum í slánna, það leit þannig út. En það var frábært hjá okkur að klára þennan leik og virkilega ljúft að sjá boltann í netinu þarna í lokin“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×