Íslenski boltinn

Atli: Skelfilegt að tapa fyrir framan þessa áhorfendur

Stefán Árni Pálsson á Laugardalsvelli skrifar
„Við áttum fullt í þessum leik og hefðum átt að skora," sagði Atli Sigurjónsson, leikmaður Þórs, eftir Bikarúrslitaleikinn í dag, en Þór tapaði 2-0 gegn KR.

„Við bara náðum ekki að koma boltanum í netið og þá vinnur maður aldrei leiki".

Þórsarar skutu fimm sinum í þverslánna í dag og voru gríðarlega óheppnir.

„Ég held að sláin sé aðeins hærri fyrir norðan og því komum við ekki boltanum í netið".

„Eins og við spiluðum í dag þá getum við unnið hvaða lið sem er í deildinni. Að þurfa að tapa fyrir framan þessa áhorfendur okkar er alveg skelfilegt".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×