Íslenski boltinn

Gunnar Þór: Þetta féll með okkur í dag

Stefán Árni Pálsson á Laugardalsvelli skrifar
„Þetta er frábært, ólýsanlegt,“ sagði Gunnar Þór Gunnarsson, leikmaður KR, eftir sigurinn á Þór í dag, en KR varð bikarmeistari eftir sigurinn.

„Það er ekki spurt að því hvaða lið fær fleiri færi, þeir fengu sín dauðafæri en nýttu þau bara ekki“.

„Við náðum að halda búrinu hreinu og unnum því leikinn, en þetta féll með okkur í dag“.

„Ég er að komast í fínt form líkamlega en það vantar aðeins uppá leikæfingu sem kemur vonandi bráðum“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×