Íslenski boltinn

Þórarinn: Þurfum að vinna alla leiki sem eftir er

Stefán Árni Pálsson á Kópavogsvelli skrifar
„Þetta var mjög mikilvægur sigur fyrir okkur eins og allir sigrar,“ sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV, eftir leikinn í kvöld gegn Blikum.

„Ef við ætlum að halda í við KR-ingana þá verðum við að vinna alla leiki sem eftir er. Mér fannst við vilja sigurinn meira í kvöld. Við lögðum okkur mikið fram og hlupum fyrir hvern annan“.

„Við viljum enda efstir og sættum okkur ekkert við að enda í topp þremur. Við ætlum að setja pressu á KR það sem eftir er af mótinu og vonandi höfum við það“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×