Uppvakningar kynna land og þjóð 21. júlí 2011 12:00 Mynd/Stefán „
Ég hef mjög gaman af því að teikna zombía og hef verið mikið zombí-nörd lengi," segir Hugleikur Dagsson, en hann myndskreytti bókina Zombie Iceland eftir Nönnu Árnadóttur og kemur sagan út í dag. Hugleikur segir bókina fjalla um ungt fólk í Vesturbænum í Reykjavík sem þarf að bregðast við innrás uppvakninga, eða eins og Hugleikur kallar þá: zombía. „Það má segja að sagan sé hefðbundið zombía-ævintýri eins og við þekkjum úr bíómyndunum, þegar hinir dauðu byrja að ganga og bera með sér þennan smitvírus,“ segir Hugleikur. Hann segir einnig að bókin sé góð landkynning, en hún er skrifuð á ensku. „Bókin er túristabók á ensku, ætluð alþjóðlegum markaði. Á flestum síðum bókarinnar eru neðanmálsgreinar sem útskýra eitthvað alíslenskt sem kemur fram í sögunni, eins og skyr og lopapeysur og svo framvegis. Það er meira að segja neðanmálsgrein um Örn Árnason," segir Hugleikur og kveðst virkilega ánægður með bókina, en það er bókaforlag hans Ókei bæ-kur sem gefur söguna út. "Við fórum líka í samstarf við Gogoyoko en bókinni fylgir lagalisti sem ein aðalpersónan í bókinni bjó til. Þetta eru lög sem aðalpersónan hlustar á þegar hún er að berjast við zombía. Á þessum lagalista má finna bestu lögin í íslenskri tónlist," segir Hugleikur, og bætir við að hljómsveitirnar Hjaltalín, Retro Stefson, Múm, Agent Fresco og FM Belfast eigi sín lög á listanum. Aðstandendur bókarinnar halda útgáfupartí á Bakkusi á morgun og hvetur Hugleikur fólk til þess að mæta í búningi. "Þeir þrír sem mæta í flottasta zombí -búningnum fá gefins bók." - ka
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Fleiri fréttir Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Sjá meira