"Þarna verða allir snargeðveikir án þess að vera á eyrunum" 22. júlí 2011 17:15 Útvarps- og tónlistarmaðurinn Freyr Eyjólfsson verður tónlistarstjóri hátíðarinnar. "
Þetta er hátíð fyrir þá sem telja að áfengi og hugleiðsla fari ekki saman, né fíkniefni og fjallganga og að það hæfi ekki að drekka í útilegum með börnum frekar en í fermingarveislum eða barnaafmælum," segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, um edrú útivistarhátíðina Sjálfstætt fólk sem haldinn verður að Hlöðum í Hvalfirði um verslunarmannahelgina, 29. júlí til 1. ágúst. Meðal listamanna sem fram koma á hátíðinni eru KK, Valdimar, Vintage Caravan, Of Monsters and Man, Lockerbie, Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar, plötusnúðarnir Addi Exos og Stefán P. Jones. Þá verður boðið upp á varðeld, kvöldvöku, sundlaugadiskó, söng, gleði og gaman. "Þarna verða allir snargeðveikir án þess að vera á eyrunum," segir tónlistarstjóri hátíðarinnar, Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður og tónlistarmaður, en markmiðið er að bjóða upp á holla og kraftmikla félagslega, andlega og líkamlega næringu og skemmtun sem allir aldurshópar geta notið saman. Mikið verður gert fyrir krakka. Það verða leikir, kappát, íþróttamót, listasmiðja, spurningakeppni, knúskeppni, brennó, blautt boðhlaup, sultuhlaup og fleira. Margrét H. Blöndal fer með börn í móaferð, týnir jurtir og málar myndir, Leikhús Lottu mætir og líka Björgvin Franz og félagar. Þá verður sérstök áhersla lögð á andlegu hliðina. Meðal þess sem verður í boði eru Brahma Kumris hugleiðslur, 12 spora fundir, svett, Gundalini hugleiðslur, Halla himintungl mætir með tjaldið sitt, Sigga Klingenberg spáir fyrir gesti, Gunnar Eyjólfsson stýrir og kynnir Qi Gong. Og eins og það sé ekki nóg þá mun Þorsteinn Jakobsson fara fyrir miðnæturgöngu á Glym, farið verður í sjósund, morgunleikfimi, gengið á Þyril og Þorvaldur Þorsteinsson flytur fyrirlestur um gleði og gæsku svo eitthvað sé nefnt. Á svæðinu er bæði sundlaug, golfvöllur og stangveiði. Stutt er í kajakróður og náttúrulaug. Það kostar aðeins 3.900 krónur fyrir 14 ára og eldri yfir alla hátíðisdaganna. Dagpassar eru í boði á 1.500 krónur fyrir skreppitúra úr bænum. Öll vímuefni bönnuð og það mun ekki sjást vín á nokkrum manni.
Mest lesið Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Ástin sem hjálpar mittismálinu Áskorun Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Lífið Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Lífið Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Tónlist „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Gjörningar og gleði á HönnunarMars Tíska og hönnun Fleiri fréttir Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Sjá meira