Þakkaði fyrir stuðning Íslendinga 10. júlí 2011 18:06 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, á fundi í Palestínu.
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, þakkaði Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, fyrir stuðning Íslendinga og sagði að hann væri mikils metinn á fundi þeirra í Palestínu. Heimsókn Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra til Palestínu lauk nú um helgina með fundum með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, Saeb Erekat aðalsamningamanni og Yasser Abed Rabbo aðalritara PLO, frelsissamtaka Palestínu. Í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu segir að Össur ítrekaði stuðning Íslendinga við tillögur sem til stendur að leggja fram á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í haust um sjálfstæði Palestínu miðað við landamærin frá 1967 og um aðild Palestínu að Sameinuðu þjóðunum. Þá ræddi hann við Abbas um með hvaða hætti Íslendingar gætu best stutt við Palestínumenn. Hann fór yfir stöðuna í viðræðunum um nýtt upphaf friðarviðræðna og lýsti Palestínumenn reiðubúna á grundvelli yfirlýsinga Barack Obama Bandaríkjaforseta og evrópskra leiðtoga frá í maí. Hins vegar virtist sem ísraelskir ráðamenn hefðu ekki áhuga á slíkum samningaviðræðum. Reynt yrði til þrautar á næstu dögum og vikum hvort hægt væri að fá Ísraelsmenn til friðarviðræðna að nýju. Að öðrum kosti neyddust Palestínumenn til að fara aðrar leiðir. Saeb Erekat kom til fundarins beint af fundum í Bandaríkjunum með fulltrúum Obama forseta þar sem rætt var meðal annars um fund kvartettsins svokallaða sem verður í vikunni. Í kvartettnum eru Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússland og Sameinuðu þjóðirnar. Utanríkisráðherra lýsti þeirri skoðun að nauðsynlegt væri fyrir Palestínumenn að koma sameinaðir fram og ná saman um myndun þjóðstjórnar. Klofningur í röðum Palestínumanna væri mikill veikleiki. Abbas sagði unnið hart að því að koma slíkri stjórn á í samvinnu Fatah og Hamas hreyfinganna. Hann myndi halda til funda í Egyptalandi um það á næstu dögum. Hann kvaðst jafnframt reiðubúinn til að senda utanríkisráðherra sinn, Riad al Malki, til Íslands til að ráðgast um næstu skref í stuðningi Íslands við málefni Palestínu. Að loknum fundunum heimsótti utanríkisráðherra bæinn Qalqilya á Vesturbakkanum en hann er umlukinn múrnum sem Ísraelsmenn hafa reist á þrjá vegu. Leið til bæjarins frá höfuðstað palestínskra stjórnvalda, Ramallah, sem ætti að taka 45 mínútur, tók þrjá tíma í akstri þar sem sneiða þurfti hjá múrnum og akbrautum sem einungis voru fyrir ísraelska bíla. Í Qalqilya átti ráðherra fundi með bæjarstjóranum og yfirmönnum öryggissveita bæjarins. Í ferð sinni kynnti ráðherra sér ástandið í Austur-Jerúsalem sem er hertekið svæði og hvernig Ísraelsmenn hafa reist landnemabyggðir víða um borgina. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna sýndu ráðherra hvernig múrinn liggur þvers og kruss um Jerúsalemborg og þjarmar að byggðum Palestínumanna.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira