Hræðsluáróður um nýtt fangelsi 13. júlí 2011 13:15 Árni hlaut 9 ára fangelsi árið 2009 fyrir fíknismygl í svokölluðu Papeyjarmáli. Fimm aðrir hlutu fangelsisdóm vegna aðildar að málinu, en mennirnir gerðu tilraun til innflutnings Mynd/Einar Ólason
Árni Hrafn Ásbjörnsson, formaður Afstöðu - félags fanga, segir hræðsluáróðri beitt í umræðu um byggingu nýs fangelsis. Hann segir þá aðferð óréttláta gagnvart almenningi. Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag gefur Árni, sem hlaut þungan dóm fyrir þátttöku sína í Papeyjarmálinu svokallaða, lítið fyrir yfirlýsingar Einars Andréssonar, formanns Fangavarðafélags Íslands, um að fangar í fangelsum landsins verði sífellt hættulegri og erfiðari og að fangaverðir séu í stöðugri hættu vegna aðstöðuleysis. „Sorglegt ef satt væri en svo er nú bara einfaldlega ekki, allavega ekki á Litla-Hrauni,“ segir Árni. „Framsetning þessi er þó fyrst og fremst til þess fallin að vekja upp ranghugmyndir hjá almenningi og ótta hjá aðstandendum þeirra sem í fangelsum eru. Menn sem vinna innan fangelsisgeirans ættu nú að hugsa sig um áður en þeir láta svona út úr sér.“Fá úrræði Árni segir fá úrræði í vistun þeirra sem dæmdir hafa verið til fangelsisvistar hér á landi. Hann gagnrýnir að það fangelsi sem nú er rætt um að byggja á höfuðborgarsvæðinu eigi að vera í senn gæsluvarðhalds-, móttöku- og kvennafangelsi. Máli sínu til stuðnings vísar hann til orða Eiríks Tómassonar, nýskipaðs hæstaréttardómara, um að ríkið brjóti gegn sáttmála SÞ um að ekki eigi að vista dæmda menn og gæsluvarðhaldsfanga á sama stað. Þá bendir Árni á að fyrir Alþingi liggi frumvarp um rafrænt eftirlit sem brýnt sé að verði að veruleika. Þá væri eðlilegt að kvennafangelsi yrði fundinn nýr staður, að mati Árna.Fyrst þá yrði hræðsluáróðurinn að veruleika Árni segist vonast til þess að ráðamenn taki á málinu með það að leiðarljósi að fangelsiskerfið stuðli að betrun og fækkun endurkomu fanga í fangelsin. „Það er ekki óeðlilegt miðað við framsetningu málsins undanfarna daga að vera fylgjandi víggirtri byggingu með vopnaðan vörð í varðturni, sama hvað það kostar. Hræðsluáróðurinn er hrópandi, en reyndin er önnur.“ Árni segir fjölmarga nýta sér það meðferðarstarf sem í boði er. „Þá eru margir sem stunda nám og aldrei hafa til að mynda eins margir skráð sig í háskólanám. Lausnin er enda ekki sú að loka sem flesta, sem lengst inni á einhvers konar biðstofu. Fyrst þá yrði hræðsluáróðurinn að veruleika.“
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fleiri fréttir Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Sjá meira