Rútbílstjórinn í Múlakvísl: Búið að eyðileggja mannorðið mitt 13. júlí 2011 13:08 Nota þurfti stóra vinnuvél til þess að koma rútunni upp úr fljótinu. Mynd / Sigurður Hjálmarsson „
Það hefði auðveldlega mátt koma í veg fyrir slysið. Það hefði verið einfalt mál,“ segir Björn Sigurðsson, rútubílstjóri sem stýrði rútunni sem fór á bólakaf í Múlakvísl í gærdag. Um tuttugu farþegar voru í bílnum þegar rútan festist út í miðri ánni með þeim afleiðingum að bjarga þurfti ferðamönnunum af þaki rútunnar. Björn heldur því fram að slysinu hefði auðveldlega mátt afstýra ef sérútbúin jeppabifreið hefði verið fengin til þess að kanna vaðið í fljótinu áður en rútan færi yfir. Sjálfur bauðst hann til þess að sjá um að kanna vaðið á eigin bíl gegn verktakakostnaði. „En því var hafnað og þess vegna lagði ég bílnum,“ segir Björn. Hann heldur því fram að óhappið í gær hefði aldrei átt sér stað hefði bíllinn verið notaður. „Það er bara búið að eyðileggja mitt mannorð,“ segir Björn sem er mikið niðri fyrir eftir óhappið í gær. Hann heldur úti langferðabílaþjónustu og vill meina að atvikið hafi stórskaðað reksturinn hans. „Ég var tjónalaus fram að þessu,“ segir Björn sem gagnrýnir einnig björgunarsveitarmenn sem komu þeim til aðstoðar. Að sögn Björns tók það björgunarsveitina óvanalega langan tíma að losa kaðal til þess að ná rútunni upp úr fljótinu. Björn segir að vegna þess hversu mikinn tíma það tók að losa kaðalinn þá hafi hann þurft að drepa á vél rútunnar og þar með hafi þurftu að draga hana upp úr fljótinu. Aðspurður hversu langan tíma það hafi tekið segir hann að þetta hafi verið mínútuspursmál. Birni segist sárna kjaftasögur um óhappið: „Það eru kjaftasögur um að það hafi bara verið einhver vitleysingur á bílnum,“ segir Björn sem þvertekur fyrir að svo sé. Hann segist hafa farið eins mögulega varlega og hægt var, en vaðið sé síbreytilegt í fljótum sem þessum, og því fór sem fór. Rútan sem Björn ók er ekki skemmd. Björn segir að rútan sé aftur komin í lag og hafi þolað volkið sem hún lenti í. Hann bauðst til þess að halda áfram flutningum yfir fljótið en Vegagerðin hafnaði því er búin að segja upp samningum við Björn að hans sögn. Björn segir slysið til rannsóknar hjá yfirvöldum en skýrslutökur hafa ekki farið fram.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira