Íslenski boltinn

Bjarni: Ætlum okkur að vera í efri hlutanum

Stefán Árni Pálsson á Stjörnuvelli skrifar
„Þetta gefur manni svakalegt kick að skora sigurmarkið svona í lokin í virkilega jöfnum leik," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn í dag. Stjarnan vann magnaðan sigur, 3-2, gegn Breiðabliki með marki á lokaandartökum leiksins.

„Blikarnir spiluðu betur en ég átti vona á eftir erfitt tap í Noregi, lentum undir en við gáfumst aldrei upp og uppskárum eins og við sáðum".

„Duglegir og kröfuharðir menn uppskera sigra og það sýndum við í dag. Við höfum lent áður undir í leikjum en komið til baka, þetta lið er með frábæran karakter".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×