Íslenski boltinn

Ólafur: Hefðum átt að refsa þeim meira

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Við erum að sjálfsögðu rosalega ánægðir að hafa unnið þennan leik,“ sagði Ólafur Örn Bjarnason, þjálfari Grindavíkur, eftir sigurinn gegn ÍBV í dag.

„Fyrri hálfleikur spilaðist mjög vel fyrir okkur og við spiluðum ágætlega. Síðan fengum við víti og þeir misstu mann útaf sem hjálpaði okkur mikið“.

„Ég tel að liðið geti spilað mun betur en það gerði í síðari hálfleiknum.  Ef við hefðum tekið aðeins betri ákvarðanir í okkar aðgerðum þá hefðum við getað refsað þeim meira, en 2-0 er ekki slæmt á móti svona góðu liði“.

„Menn halda stundum að það sé hægt að komast upp með minni vinnslu þegar lið erum orðin einum fleiri og við gerðum okkur seka um það í kvöld“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×